Innlent

Fagna Ramadan í Skógarhlíð

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
"Þetta er mjög gott tækifæri fyrir sérhvern mann til að endurmeta líf sitt, stöðu sína og samband sitt við guð," segir Ahman Taha Seddeeq.
"Þetta er mjög gott tækifæri fyrir sérhvern mann til að endurmeta líf sitt, stöðu sína og samband sitt við guð," segir Ahman Taha Seddeeq. MYND/GETTY
Föstumánuðurinn Ramadan, mikilvægasta tímabil í trúarlífi múslima, gengur í garð á morgun. Múslimar á Íslandi fagna föstunni í fyrsta skipti í menningarsetri sínu í Ýmishúsi.

Á Ramadan fasta múslimar frá sólarupprás að sólarlagi. Þeir sem hafa heilsu til skulu ekki neita matar eða drykkjar og hollt er að láta kynlífið vera. Tilgangurinn er að hreinsa og endurnýja líkama og sál.

„Þetta er mjög gott tækifæri fyrir sérhvern mann til að endurmeta líf sitt, stöðu sína og samband sitt við guð," segir Ahman Taha Seddeeq, imam eða prestur, hjá Menningarsetri múslima á Íslandi. „Í lok mánaðarins reynir maður að koma út úr þessum tíma sem ný persóna, breyta gömlum ósiðum og því sem honum líkar ekki í lífi sínu."

Imam Seddeeq leiddi kirkjugesti í bæn en hún er með þeim síðustu áður en Ramadan hefst.

„Núna höfum við stóran stað. Konurnar biðjast fyrir á svölunum og karlarnir biðjast fyrir þarna niðri. Við þökkum Allah fyrir þetta.“mynd/getty
Það er þó hægara sagt en gert fyrir þá tæplega þúsund múslima hér á landi að fasta út frá gangi sólar, sérstaklega á sumrin. Imam Ahmad Seddeq bendir á að fastan sé í raun erfiðari í heimalandi sínu, Egyptalandi, þar sem hitinn er mikill.

Það sem skipti í raun mestu máli sé að hafa fallegt og friðsælt bænahús til að leita í. Þess vegna sé ný moska menningarsetursins kærkominn griðarstaður.

„Við vorum áður með lítinn sal og það var erfitt fyrir okkur að bjóða upp á bænir og gera það sem við viljum gera vegna plássleysis. Núna höfum við stóran stað. Konurnar biðjast fyrir á svölunum og karlarnir biðjast fyrir þarna niðri. Við þökkum Allah fyrir þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×