Erlendir kröfuhafar mega ekki ráða ferðinni Heiðar Guðjónsson og hagfræðingur skrifa 5. mars 2013 06:00 Stærsta hagsmunamál almennings næstu vikurnar er hvernig haldið verður á samningum við erlenda kröfuhafa þrotabúa gömlu bankanna. Kröfuhafarnir leggja mikið á sig til að stýra opinberri umræðu og þrýsta á um hagstæða útkomu, þannig að þeir fái sem mest greitt í erlendum gjaldeyri.Úr vasa almennings Vandi Íslands felst í því að of lítill gjaldeyrir er í landinu til að mæta afborgunum erlendra lána. Gjaldeyrissköpun þjóðarinnar er skert vegna haftakerfis sem hamlar fjárfestingu og uppbyggingu útflutningsgreina. Það er því ljóst að Íslendingar hafa ekki efni á því að láta mikinn gjaldeyri af hendi til utanaðkomandi aðila. Ég hef ítarlega fjallað um þetta í greinum síðustu ár, svo sem fyrir ári síðan í greininni Hrunið 2016. Þar varaði ég við því að ef ekki yrði horfið af þeirri braut sem þjóðin var á yrði hætt við greiðslufalli ríkisins. Sem betur fer tókst að afstýra undirritun nauðasamninga sl. haust, en þar mátti litlu muna, því Seðlabankinn leyfði kröfuhöfum að flytja yfir 300 milljarða, um 2.500 milljónir dollara, úr landi í september og ætlaði að hleypa margfaldri þeirri fjárhæð úr landi fyrir áramót. Þarna var komið í veg fyrir stórslys.Afsláttur eða rétt verð Með því að hleypa ekki kröfuhöfum úr landi, og veita þeim þar með undanþágur frá gjaldeyrishöftum sem eru að sliga íslenskt hagkerfi og heimili, var ekki verið að níðast á kröfuhöfum. Þeir eiga ekki skilið að hafa forréttindi umfram Íslendinga. Íslendingar geta ekki verið gestir í eigin landi. Nú er umræðan sú að selja eigi Arion- og Íslandsbanka, sem eru í eigu kröfuhafa að langmestu leyti, til íslenskra fjárfesta og greitt verði í erlendum gjaldeyri. Í þeirri umræðu hefur verið nefnt að mikill afsláttur verði veittur í þeim viðskiptum. Afsláttur frá hverju, spyr ég? Það er ekkert verð á þessum bönkum. Ef horft er til öflugra banka í hagkerfum sem ekki búa við höft eða offjárfestingu í bankakerfinu sést að þeir hafa markaðsvirði langt fyrir neðan bókfært verð. Það er því fráleitt að tala um afslátt, þótt söluverð sé lægra en bókfært verð. Eins er það svo að raunverulegt gengi krónunnar er ekki þekkt en vísbendingar eru um að það sé mun lægra en hið skráða haftagengi Seðlabanka Íslands. Gjaldeyrisútboð Seðlabankans hafa sýnt verð í kringum 240 krónur á móti evru, en besti mælikvarðinn er sá að krónan hefur verið nánast í samfelldum veikingarham frá hruni og verðbólgan étur upp verðgildi krónunnar innanlands. Það er ekki jafnvægi á utanríkisviðskiptum sem þýðir að krónan er of sterk, ef eitthvað er. Allt tal um afslátt er því einungis til að afvegaleiða umræðuna.Að hylja slóð sína Í vikunni bárust fréttir af því að fjárfestingarbankinn Goldman Sachs stæði í samningum um að endurfjármagna Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta er nú sérstök framsetning fyrir nokkurra hluta sakir. Goldman Sachs fjármagnar ekki fyrirtæki eins og OR, heldur miðlar hann skuldum þeirra til annarra. Þeir sem standa að baki fjármögnuninni eru erlendir kröfuhafar þrotabúanna. Enda er ákvæði í þeim samningi að klára þurfi nauðasamninga við kröfuhafa föllnu bankanna svo af fjármögnuninni verði. Með öðrum orðum er verið að veifa tugum milljónum dollara framan í stjórnvöld, til að ná út þúsundum milljóna dollara, eða hundraðfaldri þeirri fjárhæð. Það er augljóst hve lítið vit er í slíkum viðskiptum. Þetta á ekki að koma hlutaðeigandi á óvart. Það hefur verið löngu vitað að stærstu kröfuhafarnir tengjast í gegnum Goldman Sachs, sem miðlaði í upphafi stórum hluta krafnanna, og svo eru margir í kröfuhafahópnum fyrrverandi starfsmenn bankans. Þetta var útskýrt í minnisblaði sem undirritaður sendi Seðlabanka Íslands árið 2009.Fjölmiðlatök kröfuhafa Fjölmiðlafulltrúar kröfuhafa, lögfræðingar þeirra og bankamenn vinna að hagsmunum umbjóðenda sinna en ekki hagsmunum íslensku þjóðarinnar. Þeir reyna kerfisbundið að draga úr trúverðugleika þeirra sem standa á rétti þjóðarinnar og reyna að afvegaleiða umræðuna. Við verðum að standa fast á rétti okkar og ekki leyfa afglöpunum í kringum IceSave að endurtaka sig. Hvorki Seðlabankinn né ríkisstjórnin eiga að stýra viðræðum við kröfuhafa. Það þarf að fá til starfans óháða sérfræðinga. Það hefur sagan kennt okkur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Opið bréf til stjórnvalda Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir Skoðun Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt? Einar G Harðarson Skoðun Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Skoðun Við skuldum þeim að hlusta Ólafur Adolfsson Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum Hlynur Már Vilhjálmsson Skoðun Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðareign, trú og skattar Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt? Einar G Harðarson skrifar Skoðun Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnvalda Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar Skoðun Við skuldum þeim að hlusta Ólafur Adolfsson skrifar Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson skrifar Skoðun Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar Skoðun Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Stéttarkerfi Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza BIrgir Finnsson skrifar Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Æfingin skapar meistarann! Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar Skoðun 140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Traust í húfi Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Verðmætasköpun án virðingar Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Aðgerðir gegn mansali í forgangi Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Framtíðin fær húsnæði Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem deyja á Gaza Elín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Brýr, sýkingar og börn Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvað er lýðskóli eiginlega? Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Skoðun
Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson skrifar
Skoðun Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar
Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar
Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar
Skoðun Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar
Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Skoðun
Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun