Innlent

Fjölgaði um nærri helming

Þorgils Jónsson skrifar
Ferðamenn lentu margir í hlýindum í febrúar, en nú árar öðruvísi.
Ferðamenn lentu margir í hlýindum í febrúar, en nú árar öðruvísi. Fréttablaðið/gva
Rétt um 40 þúsund erlendir ferðamenn sóttu Ísland heim í febrúar, nærri helmingi fleiri en í febrúar í fyrra.

Samkvæmt Ferðamálastofu fóru rétt tæplega 40 þúsund erlendir ferðamenn af landi brott í febrúar, samanborið við tæplega 28 þúsund í febrúar í fyrra. Aukningin er rúm 43 prósent. Flestir af ferðamönnunum voru frá Bretlandi, um 40 prósent. Þá komu um þrettán prósent frá Bandaríkjunum og átta prósent frá Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×