Tæknilegt gjaldþrot Landspítalans kostaði þrjá milljarða 7. mars 2013 16:15 Landspítalinn.
Ríkið er enn að takast á við tæknilegt gjaldþrot Landspítalans en enn þá á eftir að greiða þrjá milljarða króna sem stóðu út af í rekstri Landspítalans árið 2008. Þetta kemur fram í samtali við Björn Val Gíslason, þingmann Vg og formann fjárlagaráðs. „Þegar þessar aðstæður komu upp spurðum við okkur hvern fjandann við ættum að gera, ekki gátum við látið spítalann fara í þrot, og ekki stóð hann undir þessum glórulausa halla sem var afleiðing einkavæðingaráforma fyrri ríkisstjórna. Við tóku því þessa þrjá milljarða sem stóðu út af og ýttum þeim einfaldlega til hliðar," segir Björn Valur þegar hann rifjar upp þá erfiðu stöðu sem blasti við Landspítalanum skömmu eftir hrun. Hulda Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landspítalans, sagði í viðtali við norska blaðið Aftenposten í dag að spítalinn hefði farið í tæknilegt þrot þegar hún stjórnaði honum. Björn Zoëga, núverandi forstjóri Landspítalans, staðfesti þetta í samtali við Vísi fyrr í dag og sagði það með samhentu átaki hafi verið ákveðið að vinda ofan af þessari erfiðu stöðu. Aðspurður hvernig þessi 3 milljarða króna skuld verði leyst svarar Björn Valur að það sé aðeins tvennt í stöðunni, auka framlög til spítalans eða afskrifa skuldina. Skuldin hefur þó verið greidd að sögn Björns, birgjar og aðrir sem spítalinn skuldaði hafa þegar fengið borgað. „Þessir þrír milljarðar eru því enn í geymslu og við erum enn að takast á við það hvað skal gera," segir Björn Valur en líklega mun þessi eftirávandi Landspítalans velta yfir á næsta kjörtímabil.
Tengdar fréttir Björn Zoëga vissi af alvarlegu ástandi Landspítalans „Ég vissi þetta alveg," segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, spurður út í viðtal við Huldu Gunnlaugsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, í norska dagblaðinu Aftenposten en þar sagði hún að staðan í hruninu hafi verið orðin svo grafalvarleg að spítalinn hafi ekki átt fyrir launum né lyfjum. 7. mars 2013 14:13 Landspítalinn átti hvorki fyrir launum né lyfjum Landspítalinn átti ekki pening til að greiða starfsmönnum laun eða kaupa lyf, segir Hulda Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landspítalans. Hún var ráðinn forstjóri Landspítalans haustið 2008. Um það leyti sem bankakerfið á Íslandi hrundi. 7. mars 2013 11:38 Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent Fleiri fréttir Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Sjá meira
Björn Zoëga vissi af alvarlegu ástandi Landspítalans „Ég vissi þetta alveg," segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, spurður út í viðtal við Huldu Gunnlaugsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, í norska dagblaðinu Aftenposten en þar sagði hún að staðan í hruninu hafi verið orðin svo grafalvarleg að spítalinn hafi ekki átt fyrir launum né lyfjum. 7. mars 2013 14:13
Landspítalinn átti hvorki fyrir launum né lyfjum Landspítalinn átti ekki pening til að greiða starfsmönnum laun eða kaupa lyf, segir Hulda Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landspítalans. Hún var ráðinn forstjóri Landspítalans haustið 2008. Um það leyti sem bankakerfið á Íslandi hrundi. 7. mars 2013 11:38