Bíó og sjónvarp

8 myndir sem stóðust Bechdel-prófið árið 2013

The Heat er ein myndanna sem stóðst prófið með ágætum.
The Heat er ein myndanna sem stóðst prófið með ágætum.
Hér eru átta kvikmyndir sem stóðust Bechdel prófið í ár.

Bechdel-prófið er notað til þess að greina kynjahalla í skáldverkum.

Til þess að standast prófið þurfa að minnsta kosti tvær kvenpersónur að vera í verkinu og þær þurfa að eiga samræður um eitthvað annað en karlviðfangsefni. Prófið er nefnt eftir teiknimyndahöfundinum Alison Bechdel.

Bechdel-prófið er því ekki gagnrýni á myndirnar sem slíkar, en í sögu Alison Bechdel er reglan sett fram sem grín á augljósa fyrirferð karla innan söguheims kvikmyndanna.

Stór hluti kvikmynda fellur á hinu einfalda Bechdel-prófi. Má þar nefna margar vinsælustu myndir síðustu ára, til að mynda Avatar, Stjörnustríðsmyndirnar og Hringadróttinssögu.

Enough Said er skrifuð af Nichole Holofcener en hún leikstýrir einnig myndinni. 

Before Midnight er leikstýrt af Richard Linklater. Handritið er skrifað af Julie DelpyRichard Linklater og Ethan Hawke.

Blue is the Warmest Colour er leikstýrt af Abdellatif Kechiche og er byggð á skáldsögu Julie Maroh.

Kick Ass 2 er skrifuð af Jeff Wadlow, en hann leikstýrir einnig myndinni.

The Bling Ring er skrifuð af Sofiu Coppola, og byggð á grein í Vanity Fair eftir Nancy Jo Sales. 

Sofia Coppola leikstýrir einnig myndinni.

The Counselor er skrifuð af Cormac McCarthy en leikstýrt af Ridley Scott.

Blue Jasmine er skrifuð af Woody Allen, sem leikstýrir myndinni líka.

The Heat er leikstýrt af Paul Feig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×