Sport

Dominiqua og Ólafur Garðar fimleikafólk ársins

Dominique og Ólafur Garðar.
Dominique og Ólafur Garðar. Mynd/FSÍ
Stjórn Fimleikasambands Íslands hefur valið Dominiqua Ölmu Belanyi, úr Gróttu sem fimleikakonu ársins 2013 og Ólaf Garðar Gunnarsson úr Gerplu, sem fimleikamann ársins.

Á árinu 2013 skaraði Dominiqua Alma fram úr í keppni á alþjóðlegum mótum með íslenska landsliðinu og Gróttu, náði bestum árangri keppenda í fjölþraut og vann til margra verðlauna sem er frábær frammistaða í áhaldafimleikum.

Á Smáþjóðaleikum í Luxemburg vann hún til fimm verðlauna, hún sigraði keppni í fjölþraut með 48.800 stigum, sigraði með íslenska landsliðinu í liðakeppni, úrslitakeppni á einstökum áhöldum var hún í 1. sæti á tvíslá, 1. sæti á gólfi og í 3. sæti á jafnvægisslá.

Alls fjögur gullverðlaun og ein bronsverðlaun sem töldu vel í keppni þjóðanna um heildarfjölda verðlauna hverrar þjóða á leikunum. Á Evrópumótinu í Moskvu varð hún í 35. sæti í fjölþraut með 48.565 stig með bestan árangur íslenskra keppenda á mótinu.

Þetta er einn besti árangur íslenskrar konu á Evrópumóti. Hún keppti með liði Gróttu á alþjóðlegu móti í Hollandi, Fame Svod Open, þar sem hún sigraði keppni í fjölþraut og sigraði í úrslitum á stökki, tvíslá og gólfi og varð í öðru sæti á jafnvægisslá.

Ólafur kom sterkur til baka úr hásinameiðslum undir lok árs 2012 og sigraði fjölþraut á Íslandsmótinu 2013, hann varð einnig Íslandsmeistari á hringjum, stökki og svifrá.

Ólafur var í sigurliði Gerplu á bikarmóti FSÍ.  Ólafur fór með landsliði Íslands á Smáþjóðaleikana í Lúxemborg og stóð sig mjög vel, þar sem liðið vann til bronsverðlauna.  Auk þess lenti Ólafur í 4.sæti í fjölþraut ásamt því að vera í úrslit á öllum áhöldum nema stökki, Ólafur vann svo til bronsverðlauna á bogahesti. Hann keppti á Evrópumótinu í Rússlandi, lenti í 46.sæti í fjölþraut og á Heimsmeistaramótinu í Antwerpen þar sem hann lenti í 56. Sæti, sem telst mjög góður árangur á svona sterkum móti.

Dominiqua Alma Belanyi – samantekt á árangri

Gull í fjölþraut á Smáþjóðaleikum

Gull á tvíslá á Smáþjóðaleikum

Gull á gólfi á Smáþjóðaleikum

Gull í liðakeppni kvenna á Smáþjóðaleikum

Gull í fjölþraut á Fame Svod Open, Hollandi

Gull í stökki á Fame Svod Open, Hollandi

Gull á tvíslá á Fame Svod Open, Hollandi

Gull á gólfi á Fame Svod Open, Hollandi

35.sæti í fjölþraut á EM

28.sæti á jafnvægisslá á EM

1.sæti í fjölþraut á Mílanómeistaramótinu

Íslandsmeistari á tvíslá

2.sæti í fjölþraut á Íslandsmeistaramóti

Ólafur Garðar Gunnarsson – samantekt á árangri

Brons á bogahesti á Smáþjóðaleikum

Brons í liðakeppni karla á Smáþjóðaleikum

46.sæti í fjölþraut á EM

56.sæti í fjölþraut á HM

Íslandsmeistari í fjölþraut

Íslandsmeistari í hringjum

Íslandsmeistari á stökki

Íslandsmeistari á svifrá

Bikarmeistari í áhaldafimleikum, með liði Gerplu

Afrek ársins

Stjórn fimleikasambandsins hefur valið afrek Dominique Ölmu Belanyi á Evrópumótinu í Moskvu, sem afrek ársins, þar sem Dominique endaði í 35.sæti í fjölþraut kvenna, sem er besti árangur íslenskra kvenna á Evrópumóti.

Fimleikalið ársins

Stjórn Fimleikasambandsins hefur kosið meistaraflokk Gerplu í hópfimleikum sem lið ársins 2013.  Gerpla varð norðurlandameistari í hópfimleikum nú í nóvember og var það í fyrsta skiptið í 20 ár sem kvennaliði tekst að verja norðurlandatitil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×