Íslenski boltinn

Sá besti úr 2. deild á leið til Fram

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einar Bjarni fagnar sæti í 1. deild með félögum sínum í KV.
Einar Bjarni fagnar sæti í 1. deild með félögum sínum í KV. Mynd/Daníel
Flest bendir til þess að Einar Bjarni Ómarsson, miðjumaður KV, gangi í raðir Fram í Pepsi-deild karla.

Einar Bjarni, sem kjörinn var besti leikmaður 2. deildar af fyrirliðum og þjálfurum í deildinni, var lykilmaður í liði KV sem tryggði sér sæti í 1. deild karla.

Miðjumaðurinn örvfætti staðfestir við Fótbolta.net að allar líkur séu á að hann semji við Safamýrarliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×