Lífið

Björk tilnefnd til UK Music Video-verðlaunanna

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Björk á Webby-verðlaununum.
Björk á Webby-verðlaununum. AFP/NordicPhotos
Myndband Bjarkar Guðmundsdóttur við lagið Mutual Core hlýtur tvær tilnefningar til UK Music Video-verðlaunanna í ár, annars vegar fyrir bestu tæknibrellur (Best Visual Effects) og hins vegar fyrir bestu listrænu stjórnun og hönnun (Best Art Direction & Design).

Verðlaunahátíðin fer fram þann 28. október næstkomandi en verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan árið 2008.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli um allan heim og hlaut meðal annars verðlaunin “People’s Voice“, eða Rödd fólksins, á Webby-verðlaununum fyrir stuttu.

Myndbandið var framleitt af Sagafilm fyrir One Little Indian og leikstýrt af bandaríska leikstjóranum Andrew Thomas Huang.

Myndbandið var tekið upp þarsíðasta sumar í stúdíói Sagafilm á Laugavegi en alls komu þrjátíu manns að gerð myndbandsins.

Starfsliðið var allt íslenskt fyrir utan leikstjórann og aðstoðartökumanninn sem komu að utan. Meðal þeirra sem unnu við tónlistarmyndbandið voru Gústi Jak og Gus Ólafsson en um framleiðslu sá Árni Björn Helgason hjá Sagafilm.

Í myndbandinu má sjá samspil grafík og raunveruleika en Björk er grafin í sand í myndbandinu. Eldfjöll og steinar spila stórt hlutverk í sviðsmyndinni.

Myndbandið fylgir fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.