Hlauptu á sunnudaginn - hjálpaðu til við að útrýma krabbameini Ellý Ármanns skrifar 27. september 2013 15:15 Þórunn Hilda Jónasdóttir.
Þórunn Hilda Jónasdóttir 35 ára framkvæmdastjóri Lífs styrktarfélags hefur umsjá með alþjóðlega hlaupi sem fram fer í fyrsta sinn um heim allan á sunnudaginn. Segðu okkur frá hlaupinu? „Þetta er alþjóðlegt hlaup/ganga í 80 öðrum löndum sem haldið er í fyrsta sinn um heim allan. Það er upprunið frá lækni í Washington Larry Maxwell sem nýtti sér tengslanetið sitt til að koma þessu út um allan heim. Katrín Kristjánsdóttir krabbameinslæknir koma að mál við Líf styrktarfélag sem tók boltann ásamt starfsfólki Kvennadeildar Landspítalans."Hittast á lóð Landspítalans „Við ætlum að hittast á lóð Landspítalans og hlaupa eða ganga þaðan 5 eða 10 km. Hlaup.is er okkur innan handa með hlaupið og ætla að sjá um tímatökuna og einnig fer skráningin fram hjá þeim, skráningagjald er 2000 krónur en frítt fyrir 15 ára og yngri." Hlaupið hefst klukkan 13 á sunnudag „Við erum svo heppin að við getum veitt verðlaun fyrir hlaupið og eins verðum við með útdráttarverðlaun. Asics skór, hlaupajakkar frá 66°norður, Nike Fuel band frá Nova, legghlífar frá Compresssport, út að borða frá Grillmarkaðnum og Kopar, Aktív frá Nóa svo eitthvað sé nefnt," segir Þórunn Hilda.Vilja útrýma krabbameini í kvenlíffærum „Yfirlýst markmið Globeathonsins er að útrýma krabbameini í kvenlíffærum með því að sameina fólk til að sýna málaflokknum stuðning og vekja athygli á þessari tegund krabbameins." „Eins viljum við hjá Líf leggja áherslu á að konur nýti sér þá þjónustu sem er í boði hjá Leitarstöðinni og svo fer allur ágóði af hlaupinu til þess að bæta aðstöðuna á kvenlækningardeildinni." „Globeathonið er fyrir alla sem vilja sýna þessu málefni stuðning í verki, það fara bara allir á sínum hraða hvort sem þeir hlaupa eða ganga. Spáin er góð fyrir sunnudaginn svo það er tilvalið tækifæri að fá sér heilsubótargöngu í góðum hóp og styrkja gott málefni í leiðinni." Skemmtilegt myndband sem var gert með því að safna myndum frá mörgum af þátttöku löndunum má sjá hér: http://www.youtube.com/user/Globeathon. Hér eru upplýsingar um hlaupið: https://globeathon.com/ https://www.facebook.com/GlobeathonIsland https://hlaup.is/dagbok.asp?cat_id=5&module_id=220&element_id=24653
Mest lesið Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Lífið Léttir að geta loks rætt íslenskan leik opinberlega Leikjavísir Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Lífið Máli Baldoni vísað frá Lífið Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk Lífið „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Lífið Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Bíó og sjónvarp Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning Fleiri fréttir Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Máli Baldoni vísað frá Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Nefndirnar sem smíða orðin: Lýðnetið víkur fyrir internetinu og þjarki fyrir bóta Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk „Strákar verða að sýna tilfinningar“ „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Sjá meira