Sjálfhverfa Y-kynslóðin Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 18. september 2013 14:46 Þeir sem tilheyra Y-kynslóðinni freista gjarnan gæfunnar í hæfileikakeppnum, spegla sig í Facebook-færslum, vilja frægð og frama en vita síðan ekki alveg hvernig finna eigi hamingjuna.
Kynslóðin sem fædd er á tímabilinu 1975-1995 er kölluð Y-kynslóðin í grein á Huffingtonpost. Þar er sagt að þessi kynslóð eigi erfitt með að finna hamingjuna því að væntingar til lífsins eru alltaf meiri en raunveruleikinn hefur upp á að bjóða. Í greininni er kynslóðinni lýst sem sjálfhverfum snobbhænum sem hafa þá sjálfsmynd að vera algjörlega einstakar. Greinarhöfundur útskýrir að eldri kynslóðir hafi lært að til þess að ná árangri í lífinu þurfi að leggja sig allan fram. Maður uppskerir eins og maður sáir. Einnig að kynslóðir á undan hafi fundið til sameiningar, unnið fyrir hag landsins og samfélagsins. Y-kynslóðin hefur aftur á móti alist upp við það að þau séu svo einstök að þau eigi að fá hraðan frama, að allir draumar eigi að rætast og þau séu aðalatriðið í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur, án þess jafnvel að hafa mikið fyrir því. Í greininni er sagt að þeir sem tilheyra Y-kynslóðinni:Séu óeðlilega metnaðarfullir: Öryggi og hagsæld dugar ekki, það er of venjulegt. Y-kynslóðin vill upplifa sinn eigin persónulega draum þar sem þeir eru sjálfir í aðalhlutverki.Lifi í blekkingu: Y-kynslóðin sættir sig ekki við meðalmennsku. Allir halda að þeim sé ætlað eitthvað einstakt í lífinu. Einstakur þýðir að vera betri, meiri eða ólíkur hinum. Eðli málsins samkvæmt getur ekki heil kynslóð verið einstök, því þá missir orðið merkingu sína. Jafnvel núna hugsa þeir sem tilheyra Y-kynslóðinni: „Þetta er rétt, en ÉG er samt einn þeirra fáa sem er raunverulega einstakur.“Séu sífellt minntir á að þeim hafi mistekist: Samfélagsmiðlarnir minna Y-kynslóðina sífellt á að öllum öðrum gangi vel enda tjáir fólk sig yfirleitt aðeins um það jákvæða og gefa oft skakka mynd af lífi sínu. Greinarhöfundur gefur Y-kynslóðinni eftirfarandi ráð til að fanga hamingjuna: 1) Haltu áfram að vera metnaðarfullur. Þeir fiska svo sannarlega sem róa. 2) Hættu að líta á sjálfan þig sem einstakan. Þú ert ekki einstakur. 3) Hundsaðu alla aðra og ekki vera öfundsjúkur - hinir eru í nákvæmlega sömu sporum og þú.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira