Lífið

Féll í götuna og meiddist

Nicole Kidman meiddist þegar hjólreiðamaður klessti á hana á tískuvikunni í London
Nicole Kidman meiddist þegar hjólreiðamaður klessti á hana á tískuvikunni í London Nordocphotos/getty
Leikkonan Nicole Kidman meiddist í London á meðan á tískuvikunni stóð. Kidman var á leið upp á hótel eftir að hafa horft á tískusýningu fatahönnuðarins Calvin Klein, þegar hjólað var á hana.

Bæði hún og hjólreiðamaðurinn féllu í götuna og hlaut hún minniháttar meiðsl. Lögreglan og sjúkrabíll komu á staðinn og var Kidman flutt á sjúkrahús þar sem hlúð var að henni



Heimildir herma að hjólreiðamaðurinn hafi verið ljósmyndari sem flýtti sér um of til þess að ná myndum af leikkonunni.

Líklegt þykir að Kidman komi til með að kæra atvikið en ekki hefur borist yfirlýsing frá lögfræðingi hennar enn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.