Festisvall hefst á næstu dögum Ólöf Skaftadóttir skrifar 20. ágúst 2013 10:00
Listahátíðin Festisvall, sem nú er haldin í fjórða sinn, hefst 24. ágúst næstkomandi í Artima Gallerí og á Harlem bar. Festisvall fór fram fyrst árið 2010 og var upprunalega ætlað að skapa vettvang fyrir grasrót íslenskra listamanna. Hátíðin hefur farið stækkandi og þátttakendum fjölgandi síðan þá en alls hafa á annað hundrað manns komið að Festisvalli frá upphafi. „Festisvall hefur greitt leiðina fyrir grasrót ungra mynd- og tónlistarmanna og hátíðin í ár verður sú stærsta hingað til,“ segir Sævar Daníel Kolandavelu, einn af þeim sem kemur að hátíðinni í ár. Þetta árið kemur hópur þýskra, breskra og franskra listamanna til landsins og vinna ásamt þrettán íslenskum listamönnum í vinnustofu sem er opin áhugasömum frá 20. ágúst fram að upphafi sýningar. Sýningin sjálf opnar formlega á menningarnótt klukkan 14.00 í Artima Gallerí með mynd- og tónlistarverkum listamannanna og stendur yfir í tvær vikur.Sævar Daníel Kolandavelu„Erlendir og íslenskir tónlistarmenn munu svo halda veglega tónleika á Harlem Bar 28. ágúst,“ bætir Sævar við, en tónleikarnir hefjast klukkan níu. Eftir að sýningu lýkur á Íslandi mun hópurinn ferðast til Þýskalands og sýningin verður sett upp í Leipzig og Berlín. Fjölmargir listamenn koma fram á hátíðinni, en þar má nefna tónlistarmennina Futuregrapher, Georg Kára Hilmarsson og Björn Halldór Helgason - þá má nefna myndlistarmennina Árna Má Erlingsson, Davíð Örn Halldórsson, Sigtrygg Berg Sigmarsson, Sigurrós Eiðsdóttur, ásamt fjölmörgum öðrum.
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira