Við elskum þessa dúllusnúða Ellý Ármanns skrifar 20. ágúst 2013 11:30 Chiara og Hera Björk.
Söngkonan Hera Björk og Chiara, söngkona frá Möltu, heims-frumfluttu dúett um helgina í Munchen á stórri götuhátíð að nafni Hans-Sachs-Stasse fest. Þetta er elsta Gay-götupartý Þýskalands þar sem 20 - 30 þúsund manns mæta árlega á hátíðina.Hér má heyra fyrrnefndan dúett: „Þetta var ótrúlega gaman. Þarna mætir fólk alls staðar að úr Evrópu og virðast þekkja öll okkar lög og texta. Standa saman í þúsundum og syngja með okkur," segir Hera Björk spurð um hátíðina og stemninguna.Elskum þessa dúllusnúða „Við elskum þessa dúllusnúða og þeir elska okkur. Frábært samband. Við Chiara erum búnar að syngja á sömu hátíðunum undanfarin ár í mörg skipti og Valli fékk okkur svo til að gera saman dúett sem okkur þótti báðum frábær hugmynd og lagið „9 - 5" varð fyrir valinu sem Örlygur Smári útsetti svo snilldarlega upp á nýtt. Svo var kvikmyndalið á eftir okkur allan tímann en Silent ákváðu að slást með í för og gera stutta heimildarmynd um fæðingu lagsins og ferðina út. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því." Hera á sviðinu á hátíðinni í Munchen.Nóg að gera hjá Heru „Við komum öll fljúgandi úr sitt hvorri áttinni á þetta gigg. Valli kom frá Íslandi, Chiara frá Möltu og ég flaug inn frá Danmörku þar sem ég var að versla inn á sýningu fyrir búðina mína Púkó og Smart og flaug svo aftur til Danmerkur eftir giggið til að halda áfram," segir Hera.Það var stappað á tónleikunum.Nýr slagari í bígerð „Við Chiara munum eflaust syngja saman annan dúett. Nú er bara að sjá hvaða lag verður fyrir valinu eða hvort það verður frumsamið. Annars erum við næst bókaðar saman 21. desember í París með jólatónleika. En ég stoppa stutt við á Íslandi núna því við förum til Kaupmannahafnar á föstudaginn til að skemmta á Gaypride þar. Svona gengur þetta bara fyrir sig í dag, maður er fljúgandi um allt," segir hún. Það er Hands Up Music sem gefur lagið út og það kemur út í Evrópu í þessari viku og fer þá á allar helstu útvarpsstöðvar Evrópu. Gaman verður að sjá hvernig laginu verður tekið," segir Hera að lokum.
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira