Lífið

Láttu kaupóðu vinkonu þína lesa þetta

Ellý Ármanns skrifar
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Dohop.
Heimskort af H&M búðum sem sýnir hvar hægt er að fara í beinu flugi frá Íslandi beint í umræddar verslanir hefur flakkað á milli kaupóðra Íslendinga á Facebook svo vægt sé til orða tekið. Við höfðum samband við snillinginn á bak við myndina Lailu Sæunni Pétursdóttur, markaðsstjóra flugleitarvélarinnar Dohop. 

Skjaskot af HM.com.
Snilldarhugmynd 

Hvernig datt þér í hug að merkja H&M verslanir inn á kortið? „Við vorum að spjalla saman í vinnunni og ég var að tala um að ég færi alltaf í H&M þegar ég færi til útlanda. Strákarnir náttúrulega könnuðust við slíkt og töluðu líka um lista frá konunum sínum eða vinkonum um hvað þeir ættu að kaupa fyrir þær í H&M,"  svarar Laila. 

Heimskortið sem sýnir fjölda H&M verslana.
Mikilvæg atriði fyrir kaupóða

„Þá kom fram sú hugmynd að búa til kort með H&M búðum og hvert hægt væri að komast í beinu flugi frá Íslandi. Svo þegar ég var að setja saman myndina og skoða H&M vefsíðuna þá ákvað ég að bæta við mikilvægum atriðum eins og flugtíma, flugverði og svo hversu margar H&M búðir væru í borginni sem flogið væri til," segir hún.

Annað skjáskot. Þig langar í öll fötin sem þær eru í - er það ekki?
Dohop birti síðan myndina á  Facebook síðu sinni og blogginu, https://blog.dohop.is/, þar sem listann með öllum beinu flugunum og H&M búðunum er að finna. 

Laila segist hafa skemmt sér stórkostlega við að setja saman kortið og finna upplýsingarnar. „Ég var oft í Berlín þegar ég var barn og með því að vera garfa í þessu fann ég út að það eru 29 H&M búðir í Berlín og kannski er ég þess vegna svona H&M sjúk," bætir hún hlæjandi við. 

Í blogginu er einnig greint frá því hvert er ódýrast að fara og gista þar sem að Dohop er leitarsíða fyrir flug, hótel og bílaleigubíla. 

Laila verður kaupóð þegar hún stígur inn í H&M verslun eins og svo margir Íslendingar.
Versluðu eins og kaupóðir Íslendingar

Áttu eftirminnilega H&M reynslu til að deila með okkur?
 „Sögusvið eftirminnilegustu H&M reynslunnar minnar er Róm, en ég hafði verið á ferðalagi um Ítalíu í þrjár vikur með vinum mínum. Að sjálfsögðu urðum ég og ein vinkona mín að fara í H&M síðasta daginn."

„Vinkona mín var búin að finna út að það væri ein H&M búð í Róm en hún væri örlítið út fyrir borgarmúrinn. Svo við drógum strákana í næsta leigubíl. Leigubíllinn keyrði með okkur ábyggilega í 30 mínútur og við allan tímann að rökræða um að hann væri pottþétt að fara vitlausa leið. Við báðum hann um að láta okkur svo út þegar við sáum götunafnið þar sem H&M átti að vera, þrátt fyrir mótmæli leigubílsstjórans. Gatan reyndist svo vera gatan endalausa. Við þurftum að taka annan leigubíl og þá komust við að því að H&M væri í risa stórri verslunarmiðstöð við enda götunnar - næstum í útjaðri Rómar. Þegar við komum þangað kysstum við næstum jörðina fyrir framan H&M." 

„Við versluðum eins og kaupóðir Íslendingar gera og enduðum að kaupa sitthvora ferðatöskuna til að koma öllu fyrir. En svo reyndist erfitt að fá leigubíl aftur inn í Róm og við héngum fyrir utan verslunarmiðstöðina eftir lokun í tvo tíma og ég að reyna hringja á einhverjar leigubílastöðvar og tala hrognaítölsku/ensku  en ég kann sko ekkert í ítölsku. Við prófuðum að húkka einhverja bíla en ekkert gekk. Löbbuðum svo inn í smábæ sem var þarna um 20 mínútur frá, með fullar ferðatöskur í eftirdragi. Fundum einu sjoppuna sem var alveg að fara loka. Þar sat einn Pólverji sem talaði smá ensku - hjúkkit - því afgreiðslukonan gerði það ekki og hann náði að panta leigubíl fyrir okkur."

„Biðum svo í klukkustund í viðbót og þá kom loks leigubíll en það var einn mesti skrjóður sem ég hef setið í og bílstjórinn sat á pappakassa, leit út eins og Einstein og var með ýmsa skrýtna kæki. Ég held að eftir þessa H&M ferð sé ég svo sannarlega reynslunni ríkari en er sko ekkert hætt að versla í H&M."

Eftir smá umhugsun bætir svo Laila við: „Kannski ég ætti að bæta inn í kortið hvað það er langt í H&M búðirnar úr miðbæ borganna“ og skellihlær.

Hver vill ekki eignast svona buxur?
 

Þessi mynd kallar á kaffibolla.
Dohop er líka á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.