Fótbolti

Klappað fyrir Hemma | Myndband

Tilfinningarík stund átti sér stað fyrir leik Íslands og Slóveníu sem var að hefjast rétt í þessu. Áhorfendur og leikmenn vottuðu Hermanni Gunnarssyni virðingu sína með því að klappa samfellt í eina mínútu.

Óhætt er að segja að Hermann, Hemmi Gunn eins og flestir þekktu hann, hafi snert flest alla landsmenn og komu tíðindi af andláti hans í vikunni öllum í opna skjöldu. Hermann sem var 66 ára var í fríi í Tælandi en var bráðkvaddur þriðjudaginn síðasta.

Hermann spilaði alls 20 leiki með íslenska landsliðinu á sínum tíma og skoraði í þeim 6 mörk.

Hér að ofan má sjá myndskeið frá klappinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×