Farangrinum stolið - draumafríið á Íslandi breyttist í martröð 10. apríl 2013 10:28 Rob og Nadine Temple í Bláa Lóninu. Skjáskot af yorkpress.co.uk.
Parið Rob og Nadine Temple frá Kirkbymoorside á Englandi fóru í draumafríið til Íslands fyrir nokkru, en það breyttist í martröð að lokum. Þegar parið beið eftir að rúta færi með þau á Keflavíkurflugvöll eftir vel heppnað frí, stal óprúttinn aðili farangri þeirra úr anddyri hótelsins, samkvæmt breska miðlinum York Press. Í farangrinum voru vegabréfin þeirra, peningar, greiðslukort, iPad-spjaldtölva auk bíllykla og flugmiða. Þegar upp komst að töskunni hafði verið stolið leitaði parið á náðir breska sendiráðsins sem gat ekki útvegað þeim vegabréf til bráðabirgðar þá stundina. Rob hafði því samband við móður sína sem sendi þeim peninga rafrænt til Íslands. Parið beið eftir því að bankinn opnaði og komst þá að því að þau þurftu að hafa persónuskilríki á sér til þess að fá peninginn. Tveimur tímum síðar komust þau að því að þau voru stödd í vitlausum banka. Þau fengu að lokum peninginn og sendiráðið gat útvegað þeim vegabréfin. En raunum parsins var ekki lokið. Átján klukkustundum síðar voru þau komin til Bretlands en þá lentu Þau á Heathrow flugvellinum, en ekki í Manchester, þar sem bíllinn þeirra var. Eftir þessar hrikalegu raunir létu parið reyna á það að fá bætur frá tryggingafélagi flugfélagsins, eða um 2500 pund, sem eru um hálf milljón íslenskra króna. Kröfunni var hafnað á þeim forsendum að þau hefðu litið út um gluggann þegar þjófnaðurinn átti sér stað. Í reglum félagsins segir að flugfélagið sé ekki ábyrgt fyrir þjófnaði ef ferðalangurinn sér ekki, eða er ekki nægilega nálægt farangrinum. Ron segir þetta lélega afsökun í viðtali við York Press, ekki síst vegna þess að þau voru ekki stödd fyrir utan hótelið, heldur voru þau inni í anddyri þess með farangurinn nokkuð nálægt sér. Talsmaður tryggingafélagsins vildi ekki tjá sig um málið við York Press.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira