Lyfjakostnaður breytist hjá tugþúsundum manna Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. apríl 2013 17:01 Steingrímur Ari Arason.
Hluti þeirra 30 þúsund landsmanna sem fá lyf sín frítt í dag þurfa að greiða fyrir þau frá og með næsta mánuði. Á sama tíma lækkar lyfjakostnaður annarra um tugi þúsunda. Nýtt greiðsluþáttökukerfi vegna kaupa á lyfjum tekur gildi frá og með 4. maí. Í dag fá um 30 þúsund manns lyf sín frítt. Sumir þeirra koma til með að greiða fyrir hluta þeirra frá og með næsta mánuði. Til að mynda þeir sem nota sykursýkis-, flogaveikis- og krabbameinslyf. Á meðan mun lyfjakostnaður annarra lækka. Til að fá einhverja hugmynd um áhrif kerfsins höfum við tvö dæmi frá Sjúkratryggingum. Í öðru er maður sem tekur sykursýkislyf og greiðir í dag ekkert fyrir þau. Hann borgar 31.171 krónu í fyrsta sinn sem hann fær lyfin á tólf mánaða tímabili eftir að nýja kerfið tekur gildi. Greiðslurnar lækka svo verulega en samtals borgar hann 49.102 krónum meira á ári en áður. Í hinu dæminu er sjúklingur sem tekur sykursýkis-, blóðþrýstings-, og astmalyf. Áður greiddi hann 22.413 kr. í hvert sinn sem hann fékk lyfin. Framvegis greiðir hann 26.583 kr. í fyrsta sinn sem hann fær þau afgreidd á tólf mánaða tímabili en síðan lækka greiðslurnar töluvert. Hann greiðir því 49.727 krónum minna en áður. „Með þessu þá er í rauninni dregið úr mismunun með tilliti til sjúkdóma og sjúklingahópa. En jafnframt gefst kostu á því á því að færa getum við sagt, auka greiðsluþátttökuna, til þeirra sem hafa mikinn lyfjakostnað vissulega á kostnað þeirra sem nota lítið af lyfjum og eru að borga hlutfallslega lítið,“ segir Steingrímur Ari Arason. Á heimasíðu Sjúkratrygginga má finna reiknivél sem gerir fólki kleift að reikna út lyfjakostnað sinn í nýja kerfinu.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira