Segist hafa beðið Guðnýju afsökunar Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 10. apríl 2013 19:08 Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.
Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur sem var til umfjöllunar í Kastljósi á mánudag. Segist hann hafa beðið Guðnýju Jónu afsökunar og að hugur sinn hafi aldrei staðið til að fá hana til að draga kæruna til baka. „Ég átti samtal við sóknarprestinn og spurði hann um aðkomu hans að málinu,“ segir Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, en hún fundaði með Sighvati síðdegis vegna málsins. „Ég ætla nú svo sem ekki að fara nánar út í það þar sem um var að ræða trúnaðarsamtal, en ég get sagt að í samtalinu kom fram að hann hefði ekki gerst brotlegur í starfi, en hann gerði mistök.“ Solveig segir Sighvat ekki hafa brotið starfsreglur presta en það hafi verið mistök að ýja að því við stúlkuna að draga kæruna til baka. „Það eru mistök, hann átti ekki að gera það.“ En er þá ástæða til að endurskoða starfsreglur presta, ef mistök Sighvats falla ekki undir þær? „Starfsreglur og verkferli kirkjunnar eru öll mjög breytt frá þessum tíma. Það er algjör regla að allir prestar hvetja alla skjólstæðinga sína sem verða fyrir ofbeldi að kæra, og eru ekki að gerast sáttaaðilar á milli þolenda og gerenda í ofbeldismálum. Þessir verkferlar eru algjörlega á tæru í kirkjunni í dag.“ Yfirlýsingu Sighvats má lesa í heild sinni hér.Í tilefni af viðtali við Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur í Kastljósi mánudagskvöldið 8. apríl vil ég taka fram eftirfarandi:Ég hef haft samband við Guðnýju Jónu og beðið hana afsökunar á því að hafa ekki mætt henni með þeim stuðningi sem hún þurfti í kjölfar nauðgunar. Hugur minn stóð aldrei til þess að fá hana til að draga kæru sína til baka. Mér er nú ljóst mikilvægi þess að tala mjög skýrt í málum sem þessum.Í kjölfar þessa alvarlega atburðar fór af stað erfið umræða innan samfélagsins á Húsavík. Ég gerði það sem í mínu valdi stóð til að koma í veg fyrir að undirskriftalisti til stuðnings gerandanum yrði birtur í Skránni. Ég reyndi einnig að lægja öldurnar með yfirlýsingu sem birt var í Skránni. Af henni má ráða mína afstöðu sem var að réttvísin ætti að leiða þetta mál til lykta.Í mínum huga er nauðgun mjög alvarlegur glæpur, sem ber að taka á sem slíkum. Það er skýlaus réttur þolandans að kæra slíkan verknað og að réttvísin fái að hafa sinn framgang. Í dag hika ég ekki við að hvetja þolendur til að leggja fram kæru í kynferðisbrotamálum og leita þeirrar aðstoðar fagaðila sem nú er í boði. Við verðum öll að draga lærdóm af þessu máli. Mistök sem þessi mega ekki endurtaka sig.Húsavík 10. apríl 2013,Sighvatur Karlsson
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira