Tæpur helmingur heimila á erfitt með að láta enda ná saman Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. apríl 2013 09:19
10,1% heimila höfðu lent í vanskilum með húsnæðislán eða leigu, samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofu Íslands fyrir árið 2012. Svarendur voru spurðir út í stöðuna tólf mánuði áður en könnunin var gerð en hún var gerð á tímabilinu mars til maí á síðasta ári. Niðurstöðurnar voru svo birtar í morgun. 10,4% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. Rúm 27% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og tæp 14% heimila töldu greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána þunga. Árið 2012 áttu 48,2% heimila erfitt með að ná endum saman og tæp 36% heimila gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 157 þúsund með þeim leiðum sem þau venjulega nýta til að standa undir útgjöldum. Þegar heildarmyndin er skoðuð fækkaði heimilum í fjárhagsvanda milli ára í fyrsta sinn frá árinu 2008. Einstæðir foreldrar eru líklegri en aðrir hópar til að vera í fjárhagsvanda og konur sem búa einar lenda síður í vanskilum með lán en karlar sem búa einir. Heimili þar sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga var 30-39 ár voru í mestum erfiðleikum. Því hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er á heimilinu því minni líkur eru á því að heimilið eigi í fjárhagserfiðleikum. Niðurstöðurnar eru fengnar úr lífskjararannsókn Hagstofunnar en hún er liður í samræmdri lífskjararannsókn Evrópusambandsins (EU-SILC). Úrtak lífskjararannsóknarinnar 2012 var 4.347 heimili. Eftir að þeir sem eru látnir og búsettir erlendis hafa verið dregnir frá var nettó úrtakið 4.018 heimili. Svör fengust frá 3.091 heimilum sem er 77% svarhlutfall. Lífskjararannsóknin var framkvæmd í mars til maí árið 2012.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira