„Betri en allir karlarnir“ Karen Kjartansdóttir skrifar 8. apríl 2013 20:26
Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands lést í dag, 87 ára að aldri. Tveir fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins segja Thatcher hafa haft áhrif á þá sem stjórnmálamenn. Hún hafi haft umtalsverð jákvæð áhrif og verði minnst fyrir það. Karen Kjartansdóttir ræddi við þá Þorstein Pálsson og Davíð Oddsson um Járnfrúna. Thatcher var forsætisráðherra Bretlands á árunum 1979 til 1990. Hún varð fyrsta konan til að gegna því embætti á Bretlandi. Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðismanna var forsætisráðherra á sama tíma og Thatcher gegndi því embætti og hitti hana nokkrum sinnum á vettvangi stjórnmálanna. „Hún var áhrifaríkur stjórnmálamaður. Það held ég að engum dyljist," segir Þorsteinn, og segir þá eiginleika hennar hafi komið skýrt fram á minni fundum og persónulegum samtölum. Þorsteinn segir hana hafa verið umdeildan leiðtoga en hún hafi haft jákvæð áhrif. „Áhrif hennar smituðust um allt. Hún tók breskt samfélag fram á við og fyrir það verður hennar minnst." Ári eftir að Thatcher lét af embætti sem forsætisráðherra Bretlands tók Davíð Oddsson við embætti forsætisráðherra Íslands. „Ég sat með henni í klukkutíma eða svo heima hjá henni við arineld og spjallaði við hana. Ég verð þó að viðurkenna að hún talaði meira en ég, enda vildi hún gjarnan hafa það þannig, en það var afskaplega eftirminnilegt samtal og skemmtilegt." En telur Davíð að það að Thatcher var fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra hafi skipt miklu máli? „Það skiptir auðvitað máli, en það skipti auðvitað meira máli að hún var betri en allir karlarnir." Hann segir Thatcher hafa tekið við mjög erfiðar aðstæður og hafa þurft að sýna hörku í mörgum málum. Allur heimurinn hafi orðið fyrir áhrifum stjórnmála hennar. Hún hafi á endanum gert of marga reiða. Eftirmenn hennar fari ekki vel út úr samanburði við hana. „Svokallaðir sterkir leiðtogar fá líka andstöðu. Það er erfitt að segja að ein regla sé góð. Verði þeir of sterkir þá geta þeir nú orðið til bölvunar."
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira