Fótbolti

Eitt ljótasta brot sem sést hefur lengi

Úkraínumaðurinn Taras Stepanenko er líklega á leiðinni í nokkuð langt bann eftir að hafa nánast tekið hausinn af leikmanni Moldavíu.

Stepanenko braut ótrúlega af sér í teig andstæðinganna. Brotið var líklega óviljaverk en hvað hann var að hugsa með tilburðum sínum er erfitt að segja.

Hans lið var þess utan 2-1 yfir og í sókn. Óskiljanlegt brot að öllu leyti. Úkraína vann leikinn 2-1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×