Innlent

Fólk fann vel fyrir jarðskjálftanum

Klukkan 01:13 í nótt varð jarðskjálfti 3,8 að stærð, um 14 kílómetrum NV af Gjögurtá í svonefndum Eyjafjarðarál þar sem stór skjáflti uppá (5,6) varð í lok október s.l.

Nokkrir minni eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið í morgun. Tilkynningar bárust í nótt um að hann hafi fundist á Ólafsfirði, Siglufirði, Dalvík og á Húsavík.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er þetta þekkt skjálftasvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×