Innlent

Sigmundur Davíð kýldur á kjaftinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins fékk kjaftshögg þegar hann var staddur á Góufagnaði í Fljótsdalshéraði í fyrrakvöld.

Mjög ölvaður maður veittist þar að honum með þeim orðum að það væru of margir framsóknarmenn á staðnum og gaf honum síðan á kjaftinn. Lögreglan fjarlægði manninn og lét hann sofa úr sér um nóttina í fangaklefa.

Ekki liggur ljóst fyrir hvort Sigmundur Davíð muni kæra kjaftshöggið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×