Innlent

Reyndi að smygla kókaíni til landsins

MYND/GETTY
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú mál rúmlega þrítugs karlmanns sem reyndi að smygla tæplega 200 grömmum af kókaíni til landsins fyrr í þessum mánuði. Maðurinn var stöðvaður af tollgæslu við komu til landsins frá Kaupmannahöfn.

Maðurinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnabrota, var úrskuraður í gæsluvarðhald en hefur nú verið sleppt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×