Börnin alveg róleg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. mars 2013 12:11
Betur fór en á horfðist þegar kviknaði í út frá þvottavéla á leikskólanum Árbæ við Fossveg 1 á Selfossi á ellefta tímanum í morgun. Fréttablað Suðurlands greindi fyrst miðla frá þessu. Leikskólanum er skipt upp í þrjú hólf með eldvarnarhurðum. Reykurinn kom upp í miðrýminu og fór öryggiskerfið í gang. Símtal barst frá Öryggismiðstöðinni þar sem leikstkólastjórinn óskaði eftir aðstoð slökkviliðs. Leikskólastjórinn Kristín Eiríksdóttir segir í samtali við Vísi allt hafa gengið samkvæmt áætlun. Rýmingaráætlun hafi verið fylgt eftir en þetta sé í fyrsta skipti sem komi til þess að nota hana. Hún hafi þó verið æfð áður og það hafi komið sér vel. 120 börn eru á leikskólanum. „Börnin voru alveg róleg en ég held að það hafi verið af því starfsfólkið var svo rólegt," segir Kristín. Farið var með börnin út og þau klædd í fötin þar. Sum þeirra hafi þegar verið úti við leik enda veður gott. Litlu síðar var slökkviliðið mætt og sömuleiðis rafvirki sem starfar í næsta húsi. Slökkviliðið reykræsti húsið og að því loknu gátu börnin og starfsfólk snúið aftur á leikskólann.Mynd/Fréttablað SuðurlandsBörnin snæddu hádegisverð þegar blaðamaður náði tali af Kristínu. Á boðstólnum var reyktur fiskur með rófum og tilheyrandi.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Fleiri fréttir Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Sjá meira