Vilja að varsla lítilla skammta af fíkniefnum verði refsilaus Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. mars 2013 16:18 Birgitta Jónsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Nokkrir þingmenn Hreyfingarinnar og stjórnarflokkanna vilja nýja stefnu í fíkniefnamálum þar sem horfið verði frá glæpavæðingu og unnið gegn fíkniefnaneyslu á forsendum heilbrigðis- og félagslega kerfisins. Þingmennirnir hafa lagt fram tillögu á Alþingi þessa efnis, en Birgitta Jónsdóttir er fyrsti flutningsmaður hennar. Þingmennirnir segja að ef refsingar fyrir vörslu neysluskammta yrðu afnumdar væri ekki verið að lögleiða vörslu fíkniefna. Það yrði eftir sem áður ólöglegt en hins vegar refsilaust og til staðar verði sérstök nefnd eða teymi sem geti kveðið á um íþyngjandi ákvæði fyrir aðila sem verður uppvís að neyslu fíkniefna, sbr. næsta tölulið. Skilgreina þurfi hámarksmagn efna sem refsilaust megi hafa í fórum sínum en áfram verður heimilt að gera slík efni upptæk og veita aðila viðeigandi meðferðarúrræði. „Þar sem farin hefur verið sú leið að leggja af refsingar fyrir vörslu neysluskammta fíkniefna, annaðhvort vægra fíkniefna eða allra líkt og í Portúgal, hefur neysla þeirra ekki aukist mikið heldur þvert á móti minnkað í langflestum flokkum. Ekki er því með rökum eða rannsóknum hægt að halda því fram að þessi leið auki neyslu fíkniefna," segir í greinargerðinni. Meðflutningsmenn Birgittu að tillögunni eru Margrét Tryggvadóttir, Álfheiður Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Skúli Helgason, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Magnús Orri Schram og Þór Saari.Hér má lesa meira um tillöguna.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira