Innlent

Játaði sölu fíkniefna

MYND/GETTY
Stórtækur fíkniefnasali var stöðvaður í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á dögunum. Lögregla hafði upphaflega afskipti af manninum, sem er um fertugt, þar sem hann var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Sýnatökur leiddu í ljós að hann hafði neytt amfetamíns.

Við húsleit fundust síðan rúmlega 100 grömm af amfetamíni — sem var að stærstum hluta geymt í frysti — ásamt lítilræði af kannabisefnum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum játaði maðurinn að hafa lagt stund á sölu fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×