Vonast til að þingstörfum ljúki á réttum tíma Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. mars 2013 16:38 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins. Mynd/ GVA
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vonast til þess að hægt sé að ljúka þingstörfum á tilsettum tíma. Samkvæmt áætlun á að slíta þingi á föstudag. „Ég hef ekki heyrt annað en að til standi að halda sig við starfsáætlun Alþingis. Að vísu gerir maður ráð fyrir að það geti bæst við einn eða tveir dagar ef það þarf að klára mál sem hefur náðst samstaða um," segir Sigmundur Davíð. Hann segist sjálfur telja að það eigi að vera hægt að halda áætlun. Það muni þó að vísu þýða að þeir tugir mála sem bíða afgreiðslu verði ekki öll kláruð. „En það var aldrei gert ráð fyrir því held ég, að þau kláruðust öll," segir Sigmundur Davíð. „Mér þætti mjög gott ef menn héldu áætlun þó ekki væri nema til þess að skapa ekki allsherjarfordæmi fyrir því að áætlun standist ekki," bætir hann við. Sigmundur tekur þó fram að það geti hentað stjórnarandstöðunni ágætlega að þingið starfi sem lengst og sem næst kosningum. „Á móti kemur að það er mikilvægt að frambjóðendur komist í kjördæmi sín að hitta kjósendur og kynna sig," segir Sigmundur Davíð. Vísir náði hvorki tali af Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, né Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, við vinnslu þessarar fréttar.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira