Tíska og hönnun

RFF fór vel af stað

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Reykjavík Fashion Festival fór vel af stað, en tískuhátíðin var formlega sett af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í Gyllta salnum á Hótel Borg í gærkvöldi. Í ræðu sinni talaði hann um mikilvægi íslenskrar hönnunar og það að hún sé í stöðugri mótun gefi skapi góð tækifæri fyrir upprennandi fatahönnuði. Þá veitti Atli Freyr Einarsson, framkvæmdarstjóri DHL á Íslandi Guðmundi Jörundssyni hjá JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON 500.000 króna útflutningsstyrk. Rannveig Hrönn Brink, markaðsstjóri Coca-Cola Light á Íslandi veitti svo Ásgrími Má Friðrikssyni, útskriftarnema úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands, viðurkenningu. Eins og Vísir greindi frá í gær mun Ásgrímur verða með stóra innsetningu í Hörpu á aðaldegi RFF, laugardaginn 16. Mars.

Hér sjáum við myndir sem ljósmyndarinn Ingimár Flóvent tók í gærkvöldi.

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×