Frábær spá - öll skíðasvæðin opin 16. mars 2013 10:37 Það er spáð frábæru veðri í dag.
Opið er í helstu skíðabrekkum landsins í dag enda rjómablíða víðast hvar. Opið er í Hlíðarfjalli frá klukkan 10:00 til klukkan 16:00. Núna um helgina er Telemark festival og í dag eftir lokun og til kl. 18:00 verður sungið og dansað við skíðahótelið á Akureyri að því er fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum skíðasvæðisins. Það snjóaði í gær og í nótt á Akureyri og því eru staðarhaldarar bjartsýnir á góða helgi. Þá verður einnig opið í Bláfjöllum í dag til klukkan fimm. Þar er átta stiga frost, logn og heiðskýrt. Snjórinn er troðinn og færið frábært að sögn staðarhaldara. Það verður síðan snjóbrettamót í jaðri Norðurleiðar í dag, en það hófst klukkan tíu. Þá er skíðamót í Kóngsgili sem hófst einnig uppúr klukkan tíu. Göngubraut inní Kerlingardal hefur verið lögð, sem er sirka 12 kílómetrar. Einnig er opið á Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar. Í Tungudal er opið frá 11:00 – 17:00 og á Seljalandsdal frá kl 11:00. Gott færi og veður, hiti -4°C, Logn og útlit fyrir bjartan dag. Svo verður opið í dag í Böggvisstaðafjalli á Dalvík frá kl. 10:00-17:00. Aðstæður eru frábærar og stefnir í flott veður að sögn staðarhaldara. Færðin er einnig þokkaleg, en ágætt að hafa varann á, enda nokkuð um hálku. Á Vesturlandi er hálka á Fróðárheiði og Svínadal en hálkublettir á flestum öðrum fjallvegum og á einstaka stað á láglendi. Víða er nokkur hálka eða hálkublettir á Vestfjörðum, einkum á heiðum og hálsum en þó er snjóþekja á Þröskuldum og Dynjandisheiði. Þungfært er norður í Árneshrepp. Lítil hálka er á vestanverðu Norðurlandi en þó er snjóþekja er yst á Siglufjarðarvegi. Á Norðausturlandi er aftur á móti víða snjóþekja, hálka eða hálkublettir. Snjóþekja og éljagangur er í Víkurskarði og áfram snjóþekja á vegum þar fyrir austan. Hálka er á Hólaheiði og Brekknaheiði. Á Austurlandi er snjóþekja á Háreksstaðaleið, Jökuldal, Út- Héraði og Fjarðarheiði en þar er einnig skafrenningur. Hálkublettir og skafrenningur er á Fagradal og hálka og éljagangur á Oddskarði. Ófært er á Vatnsskarði eystra. Vegir eru annars auðir frá Reyðarfirði og áfram með Suðausturströndinni. Hægt er að nálgast veðurspána á vef Veðurstofu Íslands hér.
Mest lesið „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Innlent Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Veður Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira