Innlent

Fjórir stútar undir stýri

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Mynd úr safni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði akstur fjögurra ökumanna í nótt vegna ölvunar. Ein bifreiðanna var stöðvuð í austurbæ Kópavogs. Ökumaðurinn, kona á fertugsaldri, framvísaði ökuskírteini tvíburasystur sinnar en minnugir lögreglumenn þekktu konuna frá fyrri afskiptum og í kjölfarið kom í ljós að hún hafði áður verið svipt ökuréttindum.

Þá var rúmlega tvítugum karlmanni vísað út af krá í miðborginni. Maðurinn, sem var ofurölvi, sló dyravörð í andlit og kýldi í gegn um rúðu. Var farið með hann á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Dyravörðurinn mun ekki hafa fengið áverka.

Einn gisti fangageymslur á Selfossi í nótt vegna hópslagsmála í Hveragerði. Að sögn lögreglu kom upp ósætti milli tveggja manna sem vatt upp á sig þannig að vinir þeirra blönduðu sér í málið. Enginn slasaðist þó í handalögmálunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×