Innlent

Útboði á strandsiglingum frestað

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu innanríkisráðherra um að fresta útboði á strandsiglingum við Ísland.

Bæði Samskip og Eimskip hafa tilkynnt fyrirætlanir um strandsiglingar sem hefjast munu á næstu vikum.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að með því megi ætla að markmið verkefnisins nái fram að ganga og í því ljósi lagði hann til að útboði yrði frestað en áfram fylgst með framvindu málsins, að því er segir á vefsíðu stjórnarráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×