Innlent

Hreindýrin nefnd Tindur og Heiður

Mynd/Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Nýkomin hreindýr í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn hafa fengið nöfn. Vinir garðsins á Facebook lögðu Garðinum lið í nafnaleitinni.

Fjöldi góðra hugmynda barst og hafa starfsmenn komist að niðurstöðu. Nýju hreindýrin hafa fengið nöfnin Tindur og Heiður og tarfurinn sem leitarmenn fundu örmagna á heiðinni en er nú að braggast dag frá degi skal heita Austri.

Fyrir var simlan Regína sem fékk það nafn vegna þess að hún var borin sama dag og Eurovision fararnir Regína Ósk og Friðrik Ómar stigu á svið í keppninni vinsælu árið 2008.

Þau Sif Ólafsdóttir, Greta María Vikingsdóttir Canada, Sjafnar Gunarsson, Andrea Ásgeirsdóttir, Kristensa Valdís Gunnarsdóttir og Elín Hermannsdóttir fá að fóðra villtu dýrin með starfsfólki Garðsins. Öll lögðu þau til nöfn á hreindýrin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×