Maskarinn algjör skyldueign Ellý Ármanns skrifar 31. janúar 2013 13:30
Katrín Fjeldsted innanhússhönnuður er stórglæsileg kona. Hún upplýsir okkur hvað hún notar þegar kemur að snyrti- og húðvörum.Académíe Soothing and Refreshing Treatment dagkrem "Ég hef notað þetta yndislega dagkrem í þó nokkurn tíma. Þar sem ég er með viðkvæma og svo eilítið þurra húð á veturna að þá nota ég eingöngu þetta krem á öllum árstíðum. Svo kemur það í túbu, sem er hentugt í ferðalög."Maybelline 24 Hour Super Stay "Á veturna nota ég Maybelline farðann þar sem húð mín verður stundum þurr á þessum árstíma og þá nota ég hann eingöngu sem þarf, eins og til dæmis aðeins í kringum augu og nef."Smith's Rosebud varasálvi "Ég hef notað þennan varasalva í fjölda ára og gæti ekki lifað án hans í einn dag. Það vita það allir sem þekkja mig. Hann er langbestur og hef ég prófað endalaust magn af varasölvum í gegnum árin. Svo er hann líka frábær á þurrkubletti hvort sem það sé á þig eða barnið þitt. Hann er einnig hægt að nota í smokey augnförðun til að fá smá glans."Diorshow Black Out Mascara "Það þarf vart að segja neitt um þennan maskara nema eitt og það er að hann er algjör skyldueign þar sem hann gerir allt sem hver og ein vill. Það fer bara eftir hversu dramatísk þú vilt hafa augnhárin. Því fleiri lög af maskaranum - því dramatískari verða þau."White Musk olían frá Body Shop "Ég er alveg gjörsamlega háð þessari olíu. Ég blanda nokkrum dropum af henni við nánast hvaða body lotion sem er og ilmurinn helst á allan daginn sem og allt kvöldið. Ég nota hana líka beint á húðina en oftar blanda ég hana. Svo er ég ekkert að nota neitt ilmvatn núna þar sem að ilmvatnið mitt sem ég notaði er hætt að framleiða. Það var frá Marc Jacobs en þetta virðist eitthvað elta mig því ilmvatnið sem ég notaði á undan því er einnig hætt að framleiða en það var frá Helmut Lang. Ég er líka mjög smámunasöm þegar kemur að ilmvatni og á oft erfitt með að finna eitthvað sem mér líkar og þess vegna finnst mér þessi olía henta mér mjög vel núna."Katrín Fjeldsted.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Fleiri fréttir Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Sjá meira