Enginn möguleiki á að úrslitum hafi verið lekið Boði Logason skrifar 31. janúar 2013 14:49 Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hannesson eru báðir í framboði til formanns Samfylkingarinnar. „
Það er enginn möguleiki á því, vinnulagið og verklagið tryggir það. Það sem birtist í nafnlausum slúðurdálki í einu blaði er ekki beint áríðandi," segir Eysteinn Eyjólfsson, upplýsingafulltrúi Samfylkingarinnar, aðspurður hvort að mögulegt sé að úrslitum í formannskjöri flokksins hafi verið lekið til fjölmiðla. Í skoðanadálknum Tý í Viðskiptablaðinu í dag segir orðrétt: „Tilkynnt verður um nýjan formann Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um helgina. Heimildir Týs herma að Árni Páll Árnason hafi borið sigur úr býtum í baráttunni við Guðbjart Hannesson." Nú í ár var í fyrsta skiptið kosið um formann flokksins rafrænt og lauk kosningunni á mánudaginn klukkan 18. Tilkynnt verður um nýjan formann á laugardaginn klukkan 11:30. Eysteinn segir engan fót fyrir þessu orðum í Viðskiptablaðinu enda hafi kosningakerfinu verið lokað á mánudaginn og þá hafi fjölmörg atkvæði borist bréfleiðis í vikunni. „Þeir eiga eftir að fara yfir bréfatkvæðin og stemma við þau rafrænu," segir hann. Það sé kjörnefnd sem sjái um talningu atkvæða en þrír einstaklingar eru í henni. „Menn verða að halda áfram að bíða spenntir yfir því hver fær að leiða Samfylkinguna. Það er svolítið merkilegt að Jóhanna mun á morgun flytja síðustu setningarræðu sína, akkúrat fjórum árum, upp á dag, frá því hún tók við sem forsætisráðherra fyrir fjórum árum," segir Eysteinn.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Fleiri fréttir Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Sjá meira