Innlent

Stjórnarskrárfrumvarpið áfram inni í nefnd

Þorbjörn Þórðarson skrifar
„Nefndarálit frá öðrum nefndum hafa borist seinna en vonir stóðu til og hafa ekki borist frá öllum nefndum," segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, en nefndin tók þá ákvörðun fyrr í dag að bíða með afgreiðslu frumvarps til nýrra stjórnskipunarlaga úr nefndinni.

Nefndin hafði áður ákveðið að afgreiða frumvarpið í dag og setja það á dagskrá annarrar umræðu í þinginu á fimmtudaginn næstkomandi, en fallið hefur verið frá þessu. Upphafleg áform sættu nokkurri gagnrýni, enda liggja ekki fyrir umsagnir allra nefnda um frumvarpið, eins og Valgerður nefnir sjálf, og þá liggur ekki fyrir álit Feneyjarnefndarinnar svokölluðu heldur.

Valgerður segir að mikil andstaða af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi einnig skipt máli. „Mitt mat var að við gætum hafið aðra umræðu og þannig séð væri ekkert að því að vinna og þróa málið áfram í annarri umræðu en það kom hins vegar mjög mikil gagnrýni fram á þetta á fundi sem við áttum með fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks," segir Valgerður. Hún segist hissa á því að menn fallist ekki á þau vinnubrögð að önnur umræða sé nýtt til að „vinna og þróa mál."

Nú virðist mjög einörð andstaða við efni frumvarpsins í núverandi mynd af hálfu meirihluta stjórnarandstöðunnar. Áttu von á því að ykkur takist að afgreiða þetta frumvarp á yfirstandandi þingi? „Þetta eru bara Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sem eru á móti. Allir aðrir flokkar í þinginu styðja þetta og óháðir einnig. Allt verður þetta að koma í ljós. Við erum að vinna þetta eftir bestu vitund og getu," segir Valgerður. Hún segir að einhugur sé um málið í þingflokki Samfylkingarinnar.

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun og hafði ýmsar athugasemdir við frumvarpið, eins og við greindum frá í hádegisfréttum. Umsögn Tryggva Gunnarssonar í heild sinni má nálgast hér.thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×