Enginn dagur eins 13. september 2013 15:45 Edda Andrésdóttir fréttaþulur á Stöð 2.
Edda hóf feril sinn sem fréttalesari fyrir ríflega 28 árum. „Ég var blaðamaður á Helgarpóstinum þegar Ingvi Hrafn, nýráðinn fréttastjóri Sjónvarps, hringdi og hvatti mig til þess að sækja um stöðu fréttamanns. Ingvi Hrafn stóð þá fyrir miklum breytingum á fréttastofunni sem fólust meðal annars í ásýnd fréttaflutningsins og sótti hugmyndir til Bretlands og Bandaríkjanna. Hann hafði ekki farið leynt með það í símann að hann hefði áhuga á að fá mig í fréttalestur og þannig atvikaðist það að ég fór að lesa fréttir, meðfram fréttamennskunni allan daginn,“ segir Edda sem byrjaði í blaðamennsku árið 1972 á Vísi. „Þar skrifaði ég fréttir og greinar jöfnum höndum, meðal annars af gosinu í Eyjum, þaðan sem ég er ættuð. Nú hef ég bætt aðeins við það og skrifað bókina Til Eyja sem kemur út í haust,“ segir hún. Edda hefur komið víða við í fjölmiðlaheiminum, gert sjónvarps- og útvarpsþætti, verið ritstjóri tímritsins Hús og híbýli, unnið við kvikmyndagerð og skrifaði bækur. En hvað þykir henni heillandi við starf sitt? „Fjölbreytileikinn, meðal annars. Það að enginn dagur er eins. Næstum allt sem hendir fer á einn eða annan hátt í gegnum fréttastofu – ekkert má fara framhjá henni ef hún á að sinna hlutverki sínu vel og flytja fullnægjandi fréttir að kveldi, þar af leiðandi er oft eins og fréttastofa sé miðja alls. Því getur fylgt mikið álag og spenna en oftast er mikið líf og fjör á fréttastofu og hressilegur mórall.“ Edda segir fréttalesara hafa mun styttri viðveru á fréttastofunni en fréttamennina. „Við mætum síðdegis eða undir kvöld. En í raun og veru eru allir þeir sem starfa við fréttir alltaf í vinnunni á einn eða annan hátt. Alltaf með annað eyrað við fréttir eða á útkikkinu eftir því sem gæti verið frétt.“ Edda er þekkt fyrir smekklegan klæðaburð. En eru falleg föt mikilvæg í fréttalestri? „Það gildir um þetta starf sem önnur þar sem fólk þarf að vera sýnilegt að klæðaburður skiptir máli. Við á fréttastofu Stöðvar 2 viljum vera traust og áreiðanleg og ásýndin skiptir þar auðvitað máli. Þannig er þetta á öllum stærstu sjónvarpsstöðvum heims.“ Ýmislegt getur gerst í beinni útsendingu. Edda er innt eftir því hvort hún hafi gert einhver mistök á ferlinum. „Ekki að mig langi sérstaklega til að rifja það upp! En af því að atvikið er til í bók um fyndni og mistök þá skal ég gera það. Þannig er að eftir að fréttum lýkur á kvöldin kynnum við fréttalesarar efnið sem fjallað verður um í Íslandi í dag. Núorðið er þessi texti skrifaður, en áður spunnum við upp kynninguna jafnóðum. Það gekk yfirleitt eins og í sögu – þangað til einu sinni. Síðasta fréttin í þeim fréttatíma fjallaði um snáka og í kjölfarið átti ég að kynna gest sem var í þann veginn að ganga í myndverið. Mér tókst ekki betur til en svo að ég sagði: Talandi um snáka, hingað er kominn dýralæknir til þess að tala um hrossasóttina ... Þetta var ekki beint góð frammistaða og einhvers staðar þegar ég rifjaði þetta upp bað ég viðkomandi afsökunar og ætli ég noti ekki tækifærið og geri það aftur!“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira