Tækjabrjálaðir bílasjúklingar 13. september 2013 15:46 Á fullu gazi hefst á Stöð 2 í haust.
Þau Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Finnur Thorlacius ætla að leiða saman hesta sína í glænýjum og sjóðheitum bílaþætti sem nefnist einfaldlega Á fullu gazi. „Áhorfendur mega búast við stuði. Og dóti. Fullt af dóti. Við skoðum flottustu, skemmtilegustu, skrítnustu og ljótustu bíla landsins. Sjáum óbreytta borgara keppa í ralli og heimsækjum landsins helstu bílageggjara svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Sigríður Elva. Finnur tekur undir: „Þeir mega búast við skondnu og skemmtilegu sjónarhorni á bílaheiminn, keppnishörku ýmissa þátttakenda, flottum og óvenjulegum bílum, smá fróðleik um bíla en umfram allt glensi og gamni sem fylgir bílum sem leiktækjum jafnt sem farartækjum.“ Þetta er fyrsta samstarfsverkefni Sigríðar Elvu og Finns og þeim líst vel á samstarfið. „Meðstjórnandi minn er tækjabrjálæðingur eins og ég, góður ökumaður og gullfalleg að auki. Er hægt að hafa það betra?“ spyr Finnur. Sigríður Elva segir það sömuleiðis forréttindi að vera í félagsskap fólks sem er jafnvel tækjabrjálaðra en hún sjálf. Hún segir Finn einnig hafa yfirburði þegar kemur að visku um bíla. „Enda er Finnur einn helsti bílasérfræðingur landsins til margra ára. Ég held ég þurfi að prófa hvert einasta tryllitæki sem ég kemst yfir á næstunni til að vinna upp forskotið.“ En hver skyldi vera draumabíll hinna nýju þáttastjórnenda? „Yfirleitt heillast ég mest af sportbílum sem eru bæði fagrir og kraftmiklir en kosta tíföld árslaun meðalmanns og komast ekki með góðu móti yfir hraðahindrun. Nú er ég hins vegar nýbökuð móðir og praktísk eftir því. Á Íslandi þarf bíla sem komast bæði yfir hraðahindranir í höfuðborginni og veita fullt ferðafrelsi á hálendinu. Draumabíllinn í augnablikinu er því stökkbreyttur ofurjeppi svo ég geti ferðast með krílið í vetur,“ segir Sigríður Elva. Finnur á heldur ekki í vandræðum með valið: „Draumabíllinn minn í bili er einn sá er ég tók síðast í, Porsche 911 Turbo S, en Tesla Model S fylgir fast á eftir.“
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira