Lífshættan er vinsælust 13. september 2013 15:45 Stöð 2 Pósterar „
Nærmyndir af fólki hafa alltaf verið vinsælastar í Íslandi í dag; sögur af fólki í óvenjulegum aðstæðum, ásamt baráttu- og sigursögum. Einnig innslög þar sem mikill hraði og spenna koma við sögu, helst þar sem við höfum verið í „lífshættu“ eins og fallhlífarstökki, með Landhelgisgæslunni, löggunni, sjúkraflutningamönnum eða einhvers staðar úti á ballarhafi eða uppi í háloftum,“ segir Sindri Sindrason, ritstjóri og einn þáttagerðarmanna Íslands í dag. Sindri segir veturinn fram undan vera spennandi. „Við ætlum að henda okkur í hvert snilldarefnið á fætur öðru en helsta breytingin verður eflaust sú að mánudagar verða fréttatengdari en hingað til.“ Auk Sindra starfa við þáttinn þau Ásgeir Erlendsson og Hugrún Halldórsdóttir en nýliðinn í hópnum er Birta Björnsdóttir. „Hópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum sem hafa menntað sig á ólíkum sviðum í háskóla og við bjóðum Birtu hjartanlega velkomna í þáttinn.“ Sindri kveðst ekki geta gert upp á milli viðmælenda sinna. „Flestir viðmælenda minna eru eftirminnilegir á einhvern hátt. Mörg af þeim málefnum sem við tökum fyrir eru viðkvæm og erfið fyrir fólk að tala um. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir þessu og að flestir viðmælenda okkar eru óvanir sjónvarpi. Ég hef nú verið í Íslandi í dag í yfir fimm ár og á Stöð 2 hátt í tíu ár og held að fólk sé farið að þekkja hvernig maður gerir hlutina. Það vinnur með okkur.“ En hvernig kemur lýðveldið Ísland Sindra fyrir sjónir í dag? „Vonandi erum við á réttri leið eftir hrunið en ég held að við þurfum að passa okkur á að vera ekki of rétthugsandi og muna að það þarf að vera pláss fyrir fleiri skoðanir en eina. Þó svo að allir séu ekki sammála manni þýðir það ekki að viðkomandi viti ekki betur eða skilji ekki hlutina.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira