Stjórnin mun sitja út allt kjörtímabilið Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 12. mars 2013 06:00 Jóhanna Sigurðardóttir mun sitja út kjörtímabilið sem forsætisráðherra, eftir að Alþingi felldi vantrauststillögu Þórs Saari. Fréttablaðið/GVA
Alþingi felldi tillögu Þórs Saari um vantraust á ríkisstjórnina og þingrof. Að tillögu Framsóknarflokksins var tillagan borin upp í tvennu lagi og var vantrauststillagan felld með 32 atkvæðum gegn 29. Einn þingmaður, Jón Bjarnason, sat hjá og Atli Gíslason var fjarverandi. Þar sem vantraustið var fellt kom ekki til atkvæðagreiðslu um seinni hluta tillögunnar. Málflutningur þingmanna bar það með sér að þeir reiknuðu ekki með því að vantraustið yrði samþykkt. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, kvartaði yfir viðbótarútgjöldum ríkisstjórnarinnar við fjárlög og sagði að þeim útgjaldaliðum myndi „líklega fjölga enn á þessum örfáu dögum sem eftir eru af þinginu“. Ræður þingmanna báru einnig keim af því að kosningar eru í nánd. Segja má að þær hafi verið forsmekkur eldhúsdagsumræðnanna sem eru á morgun. Brigslyrðin gengu á víxl; andstæðingar tillögunnar sökuðu Þór Saari um að ganga erinda Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og þá um að hafa gert Þór að leiðtoga sínum með því að styðja tillögu hans. Stuðningsfólk vantrauststillögunnar sakaði stjórnina hins vegar um að hafa svikið loforð sín, vera hættulega atvinnulífinu og standa í vegi fyrir umbótum. Líkt og sjá má hér að neðan voru tilfinningar heitar og ýmis orð látin falla. Nú liggur fyrir þingheimi að semja um þinglok en þingi á, samkvæmt starfsáætlun, að fresta á föstudag.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira