Um 50 flóttamenn sótt um hæli á tveimur mánuðum Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. mars 2013 12:46 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra reifaði málið fyrir ríkisstjórn í dag. Mynd/ GVA.
Á fyrstu 65 dögum þessa árs bárust Útlendingastofnun 49 hælisumsóknir en til samanburðar má nefna að 115 umsóknir bárust allt síðasta ár. Það var jafnframt mesti fjöldi umsókna frá árinu 2002. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun. Þar kemur líka fram að fjölskyldufólki hefur fjölgað í hópi umsækjenda. Málsmeðferðartími í hælismálum er mjög langur og í árslok áttu 140 einstaklingar umsókn um hæli til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum en þar á meðal eru mál einstaklinga sem óskuðu hælis á árunum 2010 og 2011. Reykjanesbær fer með þjónustu við hælisleitendur samkvæmt samningi við Útlendingastofnun frá árinu 2004. Bærinn hefur lýst því yfir að ekki sé unnt að taka á móti fleiri hælisleitendum en sem sakir standa sinnir Reykjanesbær þjónustu við um 150 hælisleitendur. Innanríkisráðherra hefur lagt til að bregðast við þessu með eftirfarandi hætti: Gripið verði þegar í stað til ráðstafana til að stytta málsmeðferðartíma, jafnt hjá Útlendingastofnun og innanríkisráðuneytinu. Í því skyni verði starfsfólki fjölgað tímabundið og sett verði reglugerð um flýtimeðferð hælisumsókna. Í samvinnu við Reykjanesbæ verði óskað eftir liðsinni Rauða kross Íslands um aðkomu að búsetumálum til skamms tíma. Komist verði að samkomulagi um framtíðarskipan búsetuúrræða hælisleitenda hér á landi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira