Látinn hætta með laun út árið Garðar Örn Úlfarsson skrifar 22. janúar 2013 07:00 Jón Pálmi Pálsson
Jón Pálmi Pálsson, sem látið hefur af störfum bæjarritara á Akranesi, fær greidd laun út þetta ár samkvæmt samkomulagi um starfslok hans. Í yfirliti sem lögmenn tóku saman um greiðslur til Jóns Pálma frá árinu 2010 kemur fram að hann rukkaði ítrekað tvo aðila fyrir sama aksturinn. Hann sat í stjórnum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Menningarráðs Vesturlands og rukkaði oft þessa aðila fyrir sama aksturinn og hann rukkaði Akranesbæ fyrir. Jón Pálmi viðurkenndi að hafa gert mistök að þessu leyti og endurgreiddi bæjarsjóði. „Jón Pálmi álítur að sú leiðrétting feli í sér farsæla lausn málsins," segir í bréfi lögmanns sem gætti hagsmuna bæjarritarans. Jón Pálmi hafnaði hins vegar ásökunum um að það hafi verið brot á starfsskyldum að þiggja laun fyrir setur sínar í fyrrgreindum nefndum „enda afar óréttlátt og órökrétt að nefndarmenn séu látnir gjalda fyrir það í launum sínum fyrir nefndirnar að vera starfsmenn sveitarfélags sem hefur aðkomu að starfi nefndarinnar," sagði lögmaður bæjarritarans. „Eðlilegt er að það sé tekið til skoðunar innan hverrar stofnunar fyrir sig hvaða þóknanir sé eðlilegt og rétt að greiða en það er starfi Jóns Pálma sem bæjarritara algerlega óviðkomandi."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Sjá meira