Stjórnarskrárfrumvarpið áfram inni í nefnd Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. janúar 2013 13:16 „
Nefndarálit frá öðrum nefndum hafa borist seinna en vonir stóðu til og hafa ekki borist frá öllum nefndum," segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, en nefndin tók þá ákvörðun fyrr í dag að bíða með afgreiðslu frumvarps til nýrra stjórnskipunarlaga úr nefndinni. Nefndin hafði áður ákveðið að afgreiða frumvarpið í dag og setja það á dagskrá annarrar umræðu í þinginu á fimmtudaginn næstkomandi, en fallið hefur verið frá þessu. Upphafleg áform sættu nokkurri gagnrýni, enda liggja ekki fyrir umsagnir allra nefnda um frumvarpið, eins og Valgerður nefnir sjálf, og þá liggur ekki fyrir álit Feneyjarnefndarinnar svokölluðu heldur. Valgerður segir að mikil andstaða af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi einnig skipt máli. „Mitt mat var að við gætum hafið aðra umræðu og þannig séð væri ekkert að því að vinna og þróa málið áfram í annarri umræðu en það kom hins vegar mjög mikil gagnrýni fram á þetta á fundi sem við áttum með fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks," segir Valgerður. Hún segist hissa á því að menn fallist ekki á þau vinnubrögð að önnur umræða sé nýtt til að „vinna og þróa mál."Nú virðist mjög einörð andstaða við efni frumvarpsins í núverandi mynd af hálfu meirihluta stjórnarandstöðunnar. Áttu von á því að ykkur takist að afgreiða þetta frumvarp á yfirstandandi þingi? „Þetta eru bara Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sem eru á móti. Allir aðrir flokkar í þinginu styðja þetta og óháðir einnig. Allt verður þetta að koma í ljós. Við erum að vinna þetta eftir bestu vitund og getu," segir Valgerður. Hún segir að einhugur sé um málið í þingflokki Samfylkingarinnar. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun og hafði ýmsar athugasemdir við frumvarpið, eins og við greindum frá í hádegisfréttum. Umsögn Tryggva Gunnarssonar í heild sinni má nálgast hér.thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðavogi Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Erlent Vara við eldislax í Haukadalsá Fréttir Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Innlent Fleiri fréttir Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðavogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Sjá meira