Innlent

Datt af baki og lenti á vatnskari

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Það óhapp átti sér stað í Reykjanesbæ, að stúlka féll af baki hesti sínum og hlaut nokkur meiðsl. Stúlkan var með vinkonu sinni í útreiðatúr á Mánagrund þegar hestur hennar rauk allt í einu á fulla ferð.

Hann lenti utan í hliðstólpa á sprettinum og við það féll stúlkan af baki. Hún kastaðist þrjá til fjóra metra og stöðvaðist á kari sem notað er undir vatn fyrir hross.

Hún var með reiðhjálm á höfði og brotnaði hann við höggið. Stúlkan var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Hún fékk að fara heim að því loknu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×