Alþingi ræði hnignun í lífríki Lagarfljóts Garðar Örn Úlfarsson skrifar 13. mars 2013 06:00 Fiskgengd í Lagarfljóti er á undanhaldi. „
Það er of snemmt að fara á límingunum,“ segir Jósef Valgarð Þorvaldsson, formaður Veiðifélags Lagarfljóts, sem bíður með fullyrðingar um ástand fljótsins þar til „gruggskýrslan“ um lífríki þess kemur fram. „En það gefur augaleið að ef bætt er við gruggi þá eykst það,“ segir Jósef sem kveður einboðið að Landsvirkjun þurfi að koma að fiskræktarstarfi á vatnasviði fljótsins. Í kjölfar frétta af örri hnignun lífríkis Lagarfljóts í gær óskaði Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, eftir fundi í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins. „Ég tel mjög mikilvægt að við lærum af reynslunni af Kárahnjúkavirkjun og látum náttúruna njóta vafans,“ segir Álfheiður sem vill að til fundarins komi fulltrúar Landsvirkjunar og Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, auk sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar og Umhverfisstofnunar. Pétur Elíasson, formaður Félags landeigenda við Lagarfljót, segir Landsvirkjun ekkert samráð hafa við landeigendur sem orðið hafi fyrir skaða. „Það hefur verið valtað skelfilega yfir okkur. Þeim finnst það vera sitt einkamál en það er lágmark að við fáum að vita hvað þeir ætla að gera í mótvægisaðgerðum, bæði fyrir vatnshæðina og lífríkið.“Mynd/Úr einkasafni.
Mest lesið Lést vegna voðaskots úr haglabyssu Innlent Ökumaðurinn ungur og líðan hans góð „eftir atvikum“ Innlent Uppþot á félagsfundi Sósíalista: „Þetta var bara kjánalegt og alger óþarfi“ Innlent Nota 130 milljón dala gjöf til að greiða hermönnum laun Erlent Kona handtekin grunuð um að stinga sambýlismann sinn Innlent Segir Trump vilja nýtt „eilífðarstríð“ Erlent Maður varð fyrir skoti í Árnessýslu Innlent Bíll fór í sjóinn á Ísafirði Innlent Útspil bankans sýni að dómurinn auki samkeppni Innlent „Túnin eru bara hvít“ Innlent Fleiri fréttir Nánast enginn fái að kaupa íbúð Lögregla veitti eftirför um miðborgina Kona handtekin grunuð um að stinga sambýlismann sinn „Túnin eru bara hvít“ Nýtt vopn í búri fjármálaráðherra Uppþot á félagsfundi Sósíalista: „Þetta var bara kjánalegt og alger óþarfi“ Um fimmtíu þúsund manns í miðborginni í Kvennaverkfallinu Börn og unglingar funda á Hvolsvelli um sín mál Lést vegna voðaskots úr haglabyssu Afnám áminningarskyldu, offjölgun álfta og kvennaverkfall Ökumaðurinn ungur og líðan hans góð „eftir atvikum“ Grímuklæddur og ofurölvi í slagsmálum Útspil bankans sýni að dómurinn auki samkeppni Bíll fór í sjóinn á Ísafirði Maður varð fyrir skoti í Árnessýslu Ný viðbygging og hafragrautur í Hveragerði Grunsamleg útboð í samráði sem gæti verið víðtækt Stuttur fundur og hittast næst á mánudag Kvennaverkfall og lánabreytingar hjá Landsbanka Nýtt fíkniefni læðist inn á íslenskan markað Hóf störf of snemma eftir kvörtun vegna heimilisofbeldis Vara við vafasömum Excel-skjölum í umferð „bókstaflega út um allt“ Meinað að taka þátt þar sem hún þurfti að hafa barnið með sér Vill fund vegna „alvarlegrar stöðu“ á lánamarkaði Þingnefnd ræðir stöðuna á Grundartanga: „Þetta er bara óljóst“ Sjálfstæðismenn stefna á leiðtogaprófkjör í borginni Íslendingar meðal sakborninga en enginn í varðhaldi Svona var haldið upp á fimmtíu ára afmæli kvennafrídagsins Blöskrar „vælið“ vegna Norðuráls Neita öllum ásökunum um samráð Sjá meira