Óvissa um afdrif stjórnarskrárfrumvarpsins Höskuldur Kári Schram skrifar 17. mars 2013 18:34
Mikil óvissa ríkir um afgreiðslu stjórnarskrárfrumvarps formanna stjórnarflokkanna og bjartrar framtíðar. Svo gæti farið að engar breytingar verði gerðar á stjórnarskránni fyrir kosningar. Árni Páll Árnason, formaður samfylkingarinnar, lagði fram sáttatillögu í stjórnarskrármálinu í gær. Illa hefur gengið að ná samkomulagi um afgreiðslu málsins enda er staðan flókin og málið umdeilt, bæði innan stjórnarflokkana og á milli stjórnar og stjórnarandstöðu: Stjórnarflokkarnir, samfylking og vinstri grænir, vilja afgreiða frumvarp um breytingar á breytingarákvæði og koma auðlindarákvæðinu inn í stjórnarskrá. Framsóknarmenn telja óráðlegt að breyta breytingarákvæðinu en vilja hins vegar ræða auðlindarákvæðið. Stjórnarflokkarnir hafa hins vegar hafnað hugmyndum framsóknarmanna hvað það varðar. Sjálfstæðismenn telja að málið í heild sé fallið á tíma. Þeir eru þó tilbúnir að ræða mögulegar breytingar á breytingarákvæði en vilja stíga varlega til jarðar þegar kemur að auðlindarákvæðinu. Þingmenn Bjartrar framtíðar leggja áherslu á að breytingarákvæðinu verði breytt. Þingmenn Hreyfingarinnar vilja hins vegar afgreiða stóra stjórnarskrárfrumvarpið og leggjast gegn öðrum hugmyndum. Málið er því í algjörum hnút og viðbúið að það endi í málþófi verði það sett á dagskrá án þess að búið sé að semja um afgreiðslu þess. Tíminn vinnur með stjórnarandstöðunni enda aðeins sex vikur til kosninga. Stjórnarliðar sem fréttastofa talaði við í dag óttast að þetta gæti eyðilagt önnur stór mál sem einnig bíða afgreiðslu. Óánægja er meðal þingmanna samfylkingarinnar með framgöngu Árna Páls í málinu. Fulltrúar flokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, Valgerður Bjarnadóttir og Lúðvík Geirsson, tóku ekki þátt í því að afgreiða sáttafrumvarpið úr nefnd og kölluðu inn varamenn. Algjör óvissa ríkir því um framhald málsins. Svo gæti farið að engar breytingar verði gerðar á stjórnarskránni fyrir kosningar sem væri mikill ósigur fyrir stjórnarflokkana. Formenn flokkanna hafa fundað óformlega um málið í dag en engin niðurstaða liggur fyrir.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Fleiri fréttir Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Sjá meira