Skortir fjármagn til að stöðva eyðingu 4. maí 2013 09:00 Erna Hauksdóttir, formaður Samtaka í ferðaþjónustu segir, að marka verði skýra stefnu með sátt allra aðila. Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, segir reynt hafi verið að bregðast við en fjárveitingu skorti.
Forsætisráðuneytið fer fram á 130 milljóna aukafjárveitingu til verndunar og uppbyggingar á Þingvöllum. Verði hún ekki afgreidd er rætt um gjaldtöku á svæðið. Óttast er að vaxandi ágangur ferðamanna, allt árið um kring skilji Þingvelli eftir sem flakandi sár og víða er jarðvegurinn farinn að láta á sjá og drullusvað myndast á göngustígum. „Það hefur verið reynt að bregðast við en Þingvellir fengu fremur snautlega afgreiðslu úr fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. Af þeim 750 milljónum sem veitt var í uppbyggingu við ferðamannastaði fengum við um sextíu. Til viðbótar fengum við svo tuttugu milljónir gegn því að leggja tuttugu á móti. En það er ekki nóg,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar. Erna Hauksdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir 60 milljónir góða byrjun en ljóst sé að ráðast þurfi í að bæta verulega í alls staðar við verndun vinsælla ferðamannastaða. „Auðvitað hefði átt að vera löngu búið að setja pening í þetta drullusvað sem orðið er, en það þýðir ekki að horfa í bakspegilinn. Við höfum lýst yfir vilja til að vinna að aðgerðapakka með nýrri ríkisstjórn. Við erum öll í sama liðinu þegar kemur að þessum málum. Við viljum öll það sama,“ segir Erna. Nokkuð hefur verið rætt um gjaldtöku inn á Þingvelli og aðra vinsæla staði. Hugmyndin er þó umdeild. Álfheiður segir gjaldtökuna ekki raunhæfa. „Menn hafa rætt þetta sín á milli en mér hugnast það ekki. Mín sýn er að borgað sé fyrir þjónustu á svæðinu líkt og við þekkjum við veiðar og í Silfru. Það hefur gefist ágætlega og við náð að tvöfalda sértekjurnar þrátt fyrir niðurskurð. Þannig getum við boðið upp á aukna þjónustu á svæðinu.“ Erna segist hlynnt gjaldtöku í einhverjum skilningi. Skerpa verði þó á útfærslum. „Við verðum að vanda okkur við að finna lausn. Okkur hefur hugnast betur að selja náttúrupassa þar sem gjald er greitt um ákveðin svæði. Okkur hugnast hins vegar ekki að hafa posa við hvern foss. Enda er slíkt líka kostnaðarsamt. Eðlilegast er að að ríkið komi til móts með peninga í viðeigandi hlutfalli við skatttekjur ferðaþjónustunnar sem hafa aukist verulega.“ maria@frettabladid.is
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira