Helgi biðst afsökunar á auglýsingu um Pál Sunna Valgerðardóttir skrifar 22. mars 2013 07:00 Páll Bergþórsson og Helgi Vilhjálmsson. „
Ég er mjög ósáttur við þetta. Hann hafði ekkert samráð við okkur og ef hann hefði gert það hefði ég aldrei gefið leyfi mitt fyrir svona umfjöllun. Mér finnst þetta dálítið ómerkilegt af honum, svo ég tali nú ekki um kostnaðinn af þessum auglýsingum. En páskaeggjatíðin er auðvitað fram undan," segir Páll Bergþórsson, um notkun Helga Vilhjálmssonar, sem kenndur er við Góu, á umfjöllunum um búsetumál hans og eiginkonunnar í tveggja opnu auglýsingum sem birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í gær. Eftir að Fréttablaðið hafði samband við Helga í gær hringdi hann í Pál og baðst afsökunar. Hann vísaði ábyrgð á auglýsingunni alfarið á auglýsingastofuna, en leikurinn hafi ekki verið gerður til þess að móðga. „Ég er sáttur við auglýsinguna eins og hún er. Það getur vel verið að það sé eitthvað að þessu, eins og bara mörgu öðru," segir Helgi. Páll segist hafa tekið á móti afsökunarbeiðninni, en minnt Helga á að velferðarráðherra væri þegar kominn í húsnæðismál þeirra hjóna. „Svo það er ástæðulaust að snúast gegn Jóhönnu í þessu," segir hann. Yfirskrift auglýsingarinnar er: „Nú er nóg komið!" „Mannréttindabrot að aðskilja hjón á síðustu æviárum." „Ég kýs að gera eitthvað til að leiðrétta þetta ranglæti." og er orðunum beint að Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Fyrir utan notkun Helga á málefnum okkar er þessi ríkisstjórn á síðasta snúningi og varla við því að búast að hún geti snúið svona málum núna," segir Páll, og bætir við að hann og Hulda, kona hans sem dvelur nú á hjúkrunarheimili, standi í samningum við Hrafnistu til þess að fá að dvelja saman og um það hafi þau ekkert að kvarta. „Þvert á móti horfir vel um lausn málsins í samráði við velferðarráðuneytið og stjórn hjúkrunarheimilisins." Miklar líkur séu á því að málið leysist farsællega.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira