Neysla tóbaks í grunnskólum dregst saman 22. október 2013 10:00 Viðar Jensson verkefnisstjóri Tóbakslaus bekkur segir átakið skila árangri. Mynd/Stefán
Rannsóknir sýna að ef hægt er að fresta því að krakkar byrji að nota tóbak, þá byrja færri yfirleitt. Tóbaksneysla í grunnskólum hefur dregist mikið saman undanfarin ár en nú mælast daglegar reykingar í 10. bekk um þrjú prósent. Sú tala var töluvert hærri fyrir örfáum árum,“ segir Viðar Jensson en hann stýrir verkefninu Tóbakslaus bekkur sem nú fer af stað fimmtánda árið í röð.Skráning hafin Nemendur í 7. og 8. bekk um allt land geta tekið þátt ef enginn í bekknum notar tóbak.Allir 7. og 8. bekkir grunnskóla landsins geta tekið þátt í verkefninu, svo fremi sem enginn í bekknum notar tóbak. Viðar segir þátttöku alltaf hafa verið góða. „Um það bil sjötíu prósent 7. og 8. bekkinga landsins hafa jafnan tekið þátt á hverju ári. Áður töluðum við um „Reyklausan bekk“ en þar sem neysla á munn- og neftóbaki hefur aukist heitir verkefnið nú Tóbakslaus bekkur,“ útskýrir Viðar og segir neyslu á nef- og munntóbaki hafa aukist upp úr árinu 2007. „Ef við horfum á framleiðslutölur ÁTVR þá voru 16,7 tonn framleidd af neftóbaki árið 2007 en fjórum árum síðar hafði sú tala nánast tvöfaldast því árið 2011 voru framleidd þrjátíu tonn. Nú erum við að sjá þetta ganga til baka. Það hefur sitt að segja að neftóbaksdósin hækkaði úr 900 krónum í 1.800 krónur. Reykingarnar eru það sem við þurfum að ná niður og okkur hefur tekist það í grunnskólunum. Tóbaksneysla hefur breyst að því leyti að hún hefur færst upp. Viðlíka árangur þyrfti því að nást í framhaldsskólunum líka en þar stendur Landlæknisembættið fyrir verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli, þar sem meðal annars verður komið inn á tóbaksvarnir.“ Til að taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur þarf bekkurinn að skrá sig á heimasíðunni landlaeknir.is/tobakslausbekkur. Þá þarf bekkurinn að staðfesta tóbaksleysi sitt nokkrum sinnum yfir skólaárið á vefsíðunni. Allir þátttakendur fá senda litla gjöf og einnig eru dregnir út bekkir sem hljóta vinning. Til þess að eiga möguleika á fyrsta vinningi þarf bekkurinn að senda inn lokaverkefni sem nemendur vinna saman. „Það er ekki skilyrði. Aðstæður eru misjafnar í bekkjum til að vinna slík verkefni og mikilvægast er að vera með, fá senda gjöfina og vera með í pottinum sem dregið er úr,“ segir Viðar. „En það er frábært að sjá allt starfið sem í gangi er í bekkjunum og árlega fáum við sendan inn fjölda metnaðarfullra verkefna. Í ár munu alls tíu bekkir hljóta verðlaun, fimm þúsund krónur á hvern nemanda í bekknum, sem hópurinn getur ráðstafað að vild.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Sjá meira