Lífið

Neysla tóbaks í grunnskólum dregst saman

Viðar Jensson verkefnisstjóri Tóbakslaus bekkur segir átakið skila árangri.
Viðar Jensson verkefnisstjóri Tóbakslaus bekkur segir átakið skila árangri. Mynd/Stefán
Rannsóknir sýna að ef hægt er að fresta því að krakkar byrji að nota tóbak, þá byrja færri yfirleitt. Tóbaksneysla í grunnskólum hefur dregist mikið saman undanfarin ár en nú mælast daglegar reykingar í 10. bekk um þrjú prósent. Sú tala var töluvert hærri fyrir örfáum árum,“ segir Viðar Jensson en hann stýrir verkefninu Tóbakslaus bekkur sem nú fer af stað fimmtánda árið í röð.

Skráning hafin Nemendur í 7. og 8. bekk um allt land geta tekið þátt ef enginn í bekknum notar tóbak.
Allir 7. og 8. bekkir grunnskóla landsins geta tekið þátt í verkefninu, svo fremi sem enginn í bekknum notar tóbak. Viðar segir þátttöku alltaf hafa verið góða.

„Um það bil sjötíu prósent 7. og 8. bekkinga landsins hafa jafnan tekið þátt á hverju ári. Áður töluðum við um „Reyklausan bekk“ en þar sem neysla á munn- og neftóbaki hefur aukist heitir verkefnið nú Tóbakslaus bekkur,“ útskýrir Viðar og segir neyslu á nef- og munntóbaki hafa aukist upp úr árinu 2007.

„Ef við horfum á framleiðslutölur ÁTVR þá voru 16,7 tonn framleidd af neftóbaki árið 2007 en fjórum árum síðar hafði sú tala nánast tvöfaldast því árið 2011 voru framleidd þrjátíu tonn. Nú erum við að sjá þetta ganga til baka. Það hefur sitt að segja að neftóbaksdósin hækkaði úr 900 krónum í 1.800 krónur. Reykingarnar eru það sem við þurfum að ná niður og okkur hefur tekist það í grunnskólunum. Tóbaksneysla hefur breyst að því leyti að hún hefur færst upp. Viðlíka árangur þyrfti því að nást í framhaldsskólunum líka en þar stendur Landlæknisembættið fyrir verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli, þar sem meðal annars verður komið inn á tóbaksvarnir.“

Til að taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur þarf bekkurinn að skrá sig á heimasíðunni landlaeknir.is/tobakslausbekkur. Þá þarf bekkurinn að staðfesta tóbaksleysi sitt nokkrum sinnum yfir skólaárið á vefsíðunni. Allir þátttakendur fá senda litla gjöf og einnig eru dregnir út bekkir sem hljóta vinning. Til þess að eiga möguleika á fyrsta vinningi þarf bekkurinn að senda inn lokaverkefni sem nemendur vinna saman.

„Það er ekki skilyrði. Aðstæður eru misjafnar í bekkjum til að vinna slík verkefni og mikilvægast er að vera með, fá senda gjöfina og vera með í pottinum sem dregið er úr,“ segir Viðar. „En það er frábært að sjá allt starfið sem í gangi er í bekkjunum og árlega fáum við sendan inn fjölda metnaðarfullra verkefna. Í ár munu alls tíu bekkir hljóta verðlaun, fimm þúsund krónur á hvern nemanda í bekknum, sem hópurinn getur ráðstafað að vild.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.